Freisting
Lömbin seld á Facebook

Bræðurnir Sigurður Arnfjörð og Guðmundur Helgi Helgasynir
Bræðurnir Sigurður Arnfjörð og Guðmundur Helgi Helgasynir vinna nú að því að fá kjötvinnsluna að Núpi í Dýrafirði löggilda svo þeir geti hafið þar framleiðslu úr heima héraði.
Málið er allt á byrjunarreit en við höfum rætt við nokkra smásöluaðila um að selja vöruna, þar á meðal eina verslun sem við viljum ekki nefna á nafn á meðan enn er eftir að ganga frá lausum endum, segir Sigurður Arnfjörð hótelstjóri að Núpi. Um er að ræða tilraunaverkefni sem hófst í kjölfarið á því að ákveðið var að bjóða upp á sérvalið lambakjöt úr heimabyggð á matseðli hótelsins. Ég hjálpaði til við smölun í Hjarðardal í Dýrafirði í sumar og sérvaldi 15 lömb sem jólahlaðborðsgestum á Núpi gefst kostur á að snæða og það hefur vakið mikla lukku. Nú ætlum við að ganga enn lengra og ætlum að taka að okkur að vinna öll lömbin sem leidd verða til slátrunar frá Hjarðardal næsta haust, sem verða á bilinu 300-500. Það er ágætis aukning milli ára að fara úr 15 í 300, segir Sigurður.
Næsta skref er að sögn bræðranna um að láta taka út kjötvinnsluna og gera hana löggilda því hún er eins og er einungis hæf til að vinna kjöt fyrir veitingastaðinn og þá bændur sem panta sér tíma til að slátra fyrir verkefnið Beint frá býli. Við vonumst að með þessu muni fleiri bændur muni taka upp á þessu. Við erum í raun á hverju hausti að missa mikil verðmæti úr fjórðungnum með því að senda lömbin annað í slátrun en ekkert sláturhús er á Vestfjörðum. Þar af leiðandi erum við að búa til störf í öðrum landshlutum í stað okkar heimabyggðar. Við viljum sporna gegn þessu og halda verðmætasköpuninni fyrir vestan, segir Sigurður.
Bræðurnir hafa einnig stofnað Facebook-síðuna Ég er að vestan sem inniheldur rúmlega 2200 meðlimi og ætla að styðjast við netið við sölu á kjötinu. Við munum þegar þar að kemu,r senda tölvupóst á alla í grúppunni og þeir geta þá pantað læri, frampart eða hvað sem þá langar til. Við teljum okkur vera komin með það góðan grunn að við getum leikandi létt selt yfir 300 lömb, segir Guðmundur matreiðslumeistari en hann hefur starfað lengi vel við matartengda ferðaþjónustu á veitingastaðnum Friðrik V á Akureyri.
Greint frá á Vestfirska vefnum Bæjarsins Besta
Mynd: bb.is | [email protected]
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMyndband: Kokkar tóku á móti gestum í sal á meðan þjónar fóru í eldhúsið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanStemningsmyndir frá Kalda bar þegar tilnefningar BCA voru kynntar
-
Frétt6 dagar síðanViðvörun til neytenda vegna grænmetisrétta í stórumbúðum
-
Frétt5 dagar síðanListería greind í grænmetisbollum frá Grími Kokki
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Markaðurinn2 dagar síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag
-
Food & fun1 dagur síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn




