Smári Valtýr Sæbjörnsson
Kosning um verkfallsheimild verður rafræn
Eftirtalin félög og sambönd: MATVÍS, VM- Félag vélstjóra og málmtæknimanna, Samiðn, Rafiðnaðarsamband Íslands, Grafía –(FBM) stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum og Félag hársnyrtisveina hafa ákveðið að boða til atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun sem yrði með eftirfarandi hætti.
Tímabundið verkfall dagana 10. t.o.m 16. júní 2015 og ótímabundið verkfall sem hefst þann 24. ágúst 2015.
Verði verkföllin samþykkt munu þau taka til þeirra félagsmanna sem falla undir almennan kjarasamning Samtaka atvinnulífsins og viðkomandi stéttarfélaga og sambanda.
Kosning um verkfallsheimild verður rafræn og mun hefjast þann 24. maí 2015 og ljúka þann 1. Júní 2015, kl 10.00
Fulltrúar iðnaðarmanna hafa átt í viðræðum við SA um endurnýjun kjarasamninga. Á fundi viðræðunefndar félaganna með fulltrúum SA þann 5. maí s.l. var sýnt að viðræðurnar væru árangurslausar og það hefði ekki tilgang að halda þeim áfram.
Í þeim viðræðum sem staðið hafa yfir hafa iðnaðarmannafélögin lagt áherslu á að minnka vægi yfirvinnu í heildarlaunum með því að hækka dagvinnulaun svo þau dugi til framfærslu. Mikil þörf er fyrir nýliðun í greinunum en núverandi launakerfi hafa skapað starfsumhverfi sem höfðar síður til ungs fólks.
Fleira tengt efni:
Mynd: úr safni.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Frétt5 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn1 dagur síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanFerköntuðu hamborgararnir komnir við Tryggvagötu
-
Markaðurinn2 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanFrá kartöflum yfir í finnskt bygg




