Viðtöl, örfréttir & frumraun
Kore býður upp á PopUp í fyrsta sinn
Veitingastaðurinn Kore í Mathöllinni Granda býður uppá PopUp í fyrsta sinn og verður það haldið á Prikinu við Bankastræti 12. Tekinn er Prik snúningur á skemmtilegri matseld, morgunmatur inni og vegan, en eldhús á Prikinu og gamli seðillinn þeirra fer í frí á meðan PopUp viðburðurinn stendur yfir.
Það verður Soft opening & teiti á fimmtudaginn næstkomandi milli klukkan 19 og 21. Síðan er almenn opnun á föstudaginn og verður næstu misseri.
PopUp matseðillinn verður nokkuð lifandi og og verður boðið upp á nokkra rétti, til dæmis tacos Korean fried Chiken Wings, Fried Tiger Balls, Filth fries, Korean fried cauliflower. Til gamans getið þá verður nýr réttur á boðstólnum á Kore í nóvember, þ.e. Bibimbap og Haejang-guk sem er sterksúpa sem gengur líka undir nafninu Kóreska þynnkusúpan.
„Við erum að vinna mikið með Kóreskbragð og hráefni. Við erum að gera mikið af Kimchi og flytjum chilliduft inn sjálfir fyrir það. Þá notum við til dæmis töluvert af gochujang sem er gerjað chilli paste sem við notum í marga rétti. Á seðlinum er bæði hefðbundnir Kóreskirréttir og með smá LA twisti. Við erum til dæmis með „koresk taco“ sem hafa verið gríðarlega vinsæl, þá notum við meðal annars kimchi, bulgogi og gochujang sósu.
Hægt er að fá 4 tegundir af tacos. Korean fried Chicken rétturinn okkar hefur verið gríðarlega vinsæll og lengi vel náðum við vart að anna eftirspurn svo mikið var magnið.“
Sagði Atli Snær matreiðslumaður og eigandi Kore í samtali við veitingageirinn.is, aðspurður um Kore matseðilinn.
Atli Snær útskrifast frá Dill í maí s.l. og var fyrsti matreðsluneminn sem útskrifaðist frá Dill. Á meðan samningstímanum á Dill, þá starfaði Atli einnig sem stagé á Faviken í Svíþjóð og á Agern hjá Gunnari í New York.
Atli hefur starfað meðal annars á Kex Hostel, Bláa lóninu, Einsa Kalda og á Michelin staðnum Dill. Starfaði síðan með Kokkalandliðinu undanfarið ár sem aðstoðarmaður en þurfti frá að hverfa vegna anna við Kore.
Fylgist með á facebook síðu Kore hér.
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Rótgróið bakarí / verslun og kaffihús til sölu eða leigu
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan
Frakkar sigruðu Bocuse d’Or 2025 – Sindri Guðbrandur í 8. sæti
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan
Sjáðu keppnisrétti Sindra hér – Myndir
-
Starfsmannavelta1 dagur síðan
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir ráðin yfirmatreiðslumeistari á Fröken Reykjavík Kitchen & Bar
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Sindri Guðbrandur hóf keppni í Bocuse d´Or í morgun – Bein útsending
-
Keppni4 dagar síðan
Daníel Oddsson á Jungle hreppti Bláa Safírinn 2025 – Myndaveisla
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Glæsilegt Þorrablót Íslendinga á Gran Canaria – Kristján Frederiksen matreiðslmeistari fór á kostum – Myndir
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðan
Highland Park kynnir 56 ára viskí – sína elstu útgáfu hingað til – Kostar tæp 6 milljónir