Freisting
Kaupandinn beið of lengi með að verka óslægðan fiskinn
Forráðamaður fiskmarkaðar sem seldi línuýsu sem dæmd var af Fiskistofu óhæf til manneldis, segir kaupandann hafa beðið of lengi með að verka óslægðan fiskinn. Fullyrðingar kaupanda um að aflinn hafi ekki verið kældur séu alrangar.
Fiskur sem Stjörnufiskur í Grindavík keypti á fimmtudag af fiskmarkaðinum Örva á Skagaströnd var óhæfur til manneldis. Þetta er álit Fiskistofu sem skoðaði fiskinn á föstudag. Í skýrslunni kemur fram að aflinn hafi ekki verið slægður, hreinsaður eða kældur og legið í blóðbaði.
Lárus Ægir Guðmundsson, framkvæmdastjóri Örva, segir línubátinn sem veiddi ýsuna hafa verið með nægan ís til að kæla aflann. Það séu fyrirmæli frá Stjörnufiski að slægja ekki fiskinn. Nauðsynlegt er að slægja fiskinn áður en of langur tími líður til að hann skemmist ekki, segir Lárus. Hann segir flutningafyrirtæki hafa skilað fiskinum til Grindavíkur snemma um morgunn.
Ástæða þess að fiskurinn er í svo slæmu ásigkomulagi þegar Fiskistofa skoðar hann er sú að hann hafi legið óslægður í 26 klukkustundir. Lárus segir kvartanir af þessu tagi sjaldgæfar. Sala á fiski á markaðnum ríflega tvöfaldaðist í fyrra og nam 4.500 tonnum.
********
Greint frá á ruv.is
-
Keppni6 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt5 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn6 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni3 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni1 dagur síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn13 klukkustundir síðanLíður að jólum
-
Pistlar9 klukkustundir síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð



