Markaðurinn
Karen hjá Kaju Organic: „Ebba vildi að ég færi að framleiða glútenlausa og lífræna pítsabotna“
Karen Jónsdóttir eigandi Kaju Organic og Ebba Guðný Guðmundsdóttir frá Pure hafa tekið höndum saman og selja frosna glútenlausa pizzabotna við góðan orðstír, þar sem brauðblanda Kaju er grunnurinn og uppskriftin kemur frá Ebbu.
„Snemma árs 2023 hafði Ebba samband við mig og vildi að ég færi að framleiða glútenlausa og lífræna pítsabotna. Þar sem verkefnastaðan var pökkuð hjá mér bað ég hana að hafa samband aftur í september sem og hún gerði.“
Sagði Karen í samtali við veitingageirinn.is aðspurð um samstarfið.
Á sama tíma var Nýsköpunarsjóðurinn Uppspretta sem er í eigu Haga að auglýsa eftir styrkþegum. Þær sóttu um og fengu veglegan styrk til þróunar og til markaðsstarfs.
Sjá einnig: Tólf íslenskir frumkvöðlar í matvælaframleiðslu fá 15 milljóna króna styrk frá Uppsprettunni
Ebba hafði bakað glútenlausa pístabotna til margra ára og notaði hún í grunninn brauð blönduna frá Kaju Organic sem gerði þróunarstarfið auðveldara. Í janúar síðastliðnum fóru pítsabotnarnir á markað, tveir saman í pakkningu, forbakaðir og sem frystivara.
Botnarnir hafa slegið í gegn þar sem þeir eru ekki bara glútenlausir og lífrænir heldur stútfullir af næringu, enda innihaldsefnin ekki af verri endanum. En botnarnir innihalda: bókhveitimjöl, lúpínumjöl, möluð fær (hörfræ, graskersfræ, sólblómafræ, sesamfræ), physillum husk, matarsóda, sjávarsalt, eplaedik og pitsakrydd.
Botnarnir fást í stórum pakkningum
Í dag fást botnarnir í verslunum Hagkaupa, Fjarðarkaup og Melabúð en einnig er hægt að kaupa botnana frá þeim í stórum pakkningum. Pítsabotnarnir eru einstaklega bragðgóðir og henta með hvaða áleggi sem er.
Myndir: aðsendar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Markaðurinn1 dagur síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir – Iðan fræðslusetur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Starfsmannavelta1 dagur síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Markaðurinn21 klukkustund síðanNetflix-stjarnan Juan Gutierrez með pop-up á Lava við Bláa Lónið
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Markaðurinn5 dagar síðanDineout mælir með að kíkja á „Vorfögnuð á Austur-Indíafjelaginu“ í apríl
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí





