Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
José á Caruso opnar nýjan stað

Casa Grande er staðsett að Ægisgarði 2 við gömlu höfnina í Reykjavík, þar sem Tapashúsið var áður til húsa.
„Við höfum breytt áherslum og nafni staðarins Tapashússins, einnig höfum við breytt miklu að innan. Nýji staðurinn heitir Casa Grande. Við erum með sama starfsfólk, sömu kennitölu, nýjan matseðil og nýtt nafn“, segir í fréttatilkynningu.
Það má segja að við séum að gera nýjan stað á gömlum grunni. Fyrirtækið heitir Casa Grande og það var ákveðið að breyta nafninu á veitingastaðnum um leið og við tókum það í gegn og endurhönnuðum ýmislegt innandyra. Það er sama kennitala og áður. Það var líka ágætt að breyta nafninu því Tapas húsið og Tapas barinn eru svolítið lík og þetta ruglaði fólk. Ég og mitt fólk erum hæstánægð með nýja staðinn. Nálægðin við gömlu höfnina skapar sérstætt og heillandi andrúmsloft og gestir njóta þess að borða ljúffengan mat í þessu fallega húsi og rómantíkin svífur yfir
, segir José Garcia, veitingamaður sem oftast er kenndur við Caruso sem nú er til húsa í Austurstræti 22.
Á Casa Grande er boðið upp á fjölbreyttan matseðil sem er ættaður frá slóðum Miðjarðarhafsins.
Við erum með spennandi og fjölbreyttan matseðil sem ætti að henta öllum. Matargestir geta valið um ljúffenga fiskrétti úr ferskasta sjávarfangi sem völ er á hverju sinni og gæðakjötrétti að ógleymdum pítsunum sem nutu svo mikilla vinsælda á Caruso í Bankastræti. Ég gat ekki brugðist fastagestum mínum sem elskuðu pítsurnar þar. Þess vegna er kominn upp pizzuofn á Casa Grande
,segir José í samtali við Morgunblaðið, ánægður á svip og bætir við að það séu einnig pítsur á matseðlinum á Caruso í Austurstræti 22 þar sem hann er einnig eigandi.
Greint frá í Morgunblaðinu.
Mynd: af facebook síðu Casa Grande restaurante.

-
Viðtöl, örfréttir & frumraun23 klukkustundir síðan
Fermingarundirbúningur í brennidepli – Kynningarsýning í Múlabergi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun12 klukkustundir síðan
Matarveisla í Reykjavík: Stjörnukokkar töfra fram íslenska sælkerarétti
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Vantar kokka á hótel Hellnar og hótel Húsavík
-
Markaðurinn22 klukkustundir síðan
Skapandi konfektmeistari óskast
-
Keppni2 dagar síðan
Nýr vettvangur fyrir brauð-sérfræðinga: Heimsmeistaramót brauð-sommelier í fyrsta sinn
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Sænsku bollurnar – Semlur
-
Starfsmannavelta3 dagar síðan
Veitingageirinn titrar: Bloomin’ Brands með umfangsmiklar uppsagnir
-
Frétt19 klukkustundir síðan
Uber Eats höfðar mál gegn DoorDash vegna meintra einokunaraðferða