Uppskriftir
Jólaglögg
Jólaglögg
Innihald:
1 flaska rauðvín
6 cl. gin
5 negulnaglar
2 mildar karmommur
2 kanilstangir
1 dl. sykur
Aðferð:
Takið börkinn af hálfri appelsínu og skerið í mjög fína strimla. Mjög mikilvægt er að hvíti hluti barkarins fylgi ekki í glöggið.
Því næst tekurðu hnefafylli af afhýddum möndlum og rúsínum og hitar upp í víninu og bætir negulnum og kanilstöngunum við.
Passið að vínið sjóði ekki og bætið svo gininu við ásamt kardimommunum. Hitið í um fimm mínútur og bætið þá sykri og appelsínuberki við og hrærið.
Haldið heitu í örfáar mínútur til viðbótar og berið svo fram sjóðandi heitt með rúsínum og möndlum.
Athugið að þetta er bragðmikil uppskrift.
Mynd: úr safni
-
Keppni4 dagar síðanGull hjá Kokkalandsliðinu í Lúxemborg
-
Frétt6 dagar síðanMyglueitur í hveiti: neytendur hvattir til að kanna birgðir sínar
-
Markaðurinn6 dagar síðanSvartir dagar hjá Progastro
-
Keppni5 dagar síðanFréttavaktin: Fylgstu með Kokkalandsliðinu á HM
-
Keppni1 dagur síðanKokkalandsliðið hlaut gull í báðum keppnisgreinum á HM
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanVerður 90 ára í febrúar og stendur enn vaktina í eldhúsinu
-
Keppni2 dagar síðanFréttavaktin: Kokkalandsliðið mætir í Chef’s Table í dag
-
Keppni6 klukkustundir síðanKokkalandsliðið í fjórða sæti á HM



