Íslandsmót iðn- og verkgreina
Íslandsmót iðngreina haldið í Laugardalshöll dagana 16.-18. mars 2017
Í matreiðslu og framreiðslu verður keppt í tveimur flokkum: Ungliðakeppni þar sem fer fram val á keppendum fyrir Euro Skills 2018 og nemakeppni sem er undankeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í Danmörku 2018.
Undankeppni Euro Skills 2018
Keppt verður í matreiðslu og framreiðslu. Inntökuskilyrði eru að keppendur mega ekki vera eldri en 24 ára 1. des 2017. Sigurvegarar öðlast keppnisrétt á Euro Skills í Búdapest 26. – 28. september 2018. Sigurvegarar þurfa að vera reiðubúnir í æfingaferli ári fyrir keppni.
Nemar, sveinar og meistarar eru allir gjaldgengnir í þessa keppni eina skilyrðið er aldurstakmarkið.
Í matreiðslu er keppnin fjögurra rétta dinner:
Skelfiskforréttur (heitur) – 2 garnish hið minnsta
- 1 tegund af heitri sósu hið minnsta
- Skelfiskur mystery
Service – 3 diskar (2 fyrir dómara og 1 til sýnis)
Fiskur forréttur (heitur) – 2 garnish hið minnsta
- 1 heit sósa hið minnsta
- Fiskur mystery
Service – 7 diskar ( 4 fyrir gesti, 2 fyrir dómara og 1 til sýnis)
Kjöt aðalréttur (heitur) – 2 tegundir af grænmeti hið minnsta
- 1 tegund af sterkju mið minnsta
- 1 tegund af sósu hið minnsta
- Kjöt mystery
Service – 3 diskar eitt fat (4 fyrir gesti á fati, 2 fyrir dómara og 1 til sýnis)
Dessert (kaldur) – 2 garnish hið minnsta
- 1 tegund af sósu hið minnsta
- Rétturinn verður að innihalda marzipan
Service – 7 diskar (4 fyrir gesti, 2 fyrir dómara og 1 til sýnis)
Í framreiðslu verður keppt í:
Blindsmakki á léttvíni – Vínlisti kynntur síðar
- 4 Hvít
- 4 Rauð
Ávaxtaskurður:
- minnst 3 ávextir
- mystery basket ávextir
Boxing table
- Dúkað upp borð fyrir Rússneskan Service
- 10 mismunandi Servéttubrot
Ostaskurður og framreiðsla
- Lágmark þrír ostar til afgreiðslu
- Afgreitt sem milliréttur
Klassísk Kokteilgerð
- Blanda 3 mismunandi drykki, tvo af hverri tegund.
Upptekning á fjögurra manna borði ásamt hliðarborði
Service úr eldhús
- 3 rétta matseðill
- Franskur service á einum réttanna
Vínpörun
- fyrir 3 rétta matseðil og ostana
Undankeppni fyrir Norrænu nemakeppnina í Danmörku 2018
Keppt verður í framreiðslu og matreiðslu. Inntökuskilyrði er að nemar mega ekki vera eldri en 22 ára 1.maí 2017.
Fimm efstu keppendur í matreiðslu og framreiðslu keppa til úrslita í Hörpu á undan keppninni Kokkur ársins og Þjónn ársins í september nk. Tveir efstu í úrslitum í matreiðslu og framreiðslu munu keppa í Norrænu nemakeppninni í Danmörku 2018.
Verkleg keppni nema í matreiðslu og framreiðslu – verkefni nemanna er mystery basket
Skráning er hafin
Umsóknir berast til [email protected] merkt Norræna nemakeppnin eða Euro skills 2018 og er umsóknarfrestur til 18.febrúar
Samsett mynd frá myndum á skillsiceland.is
-
Frétt6 dagar síðanKrydd og Kavíar taka að sér allt að 1000 máltíðir á dag fyrir Reykjavíkurborg
-
Markaðurinn4 dagar síðanMötuneyti á Húsavík óskar eftir öflugum einstaklingi í eldhús – Matseðlagerð, innkaup og dagleg eldamennska
-
Frétt3 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Markaðurinn3 dagar síðanKokkur óskast á Fosshótel Jökulsárlóni, fullt starf í einstöku umhverfi
-
Markaðurinn4 dagar síðanMS kynnir tvær nýjar bragðtegundir af kotasælu í byrjun mars
-
Markaðurinn3 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Frétt4 dagar síðanFerskur kjúklingur tekinn úr sölu í nokkrum Bónusverslunum
-
Frétt5 dagar síðanMichelin snýr aftur til Las Vegas eftir 17 ára hlé





