Pistlar
Hvernig keyra á fyrirtæki í þrot? – Þessi fyrirtæki skora á samningaðila
Þær rekstraraðstæður sem þið keppist við að semja um á veitingamarkaði eru ekkert annað en ósjálfbærar fyrir fyrirtækin sem starfa á veitingamarkaði.
Hver sem er getur séð það neyðarástand sem ríkir í greininni, jafnt gömul sem ný fyrirtæki eru að þrotum komin. Launaliðurinn er því miður löngu kominn að þolmörkum og orðin það fyrirferðarmikill að enginn innistæða er fyrir ferkari hækkunum fyrir greinina. Enda finnast ekki viðlíka álagsgreiðslur og á Íslandi. Hvergi.
SVEIT hefur ítrekað varað við þeirri þróun sem hefur nú leitt af sér þá stöðu sem við erum komin í en í fyrra fóru fleiri fyrirtæki á hausinn en síðastliðin áratug. Þá búa fyrirtækin við rekstrarumhverfi þar sem:
- 50% starfsmanna eru með undir 1 árs starfsreynslu.
- 80% störf í greininni eru hlutastörf.
- 70% launagreiðslna eru greidd með álagi.
- Frá 2016 hafa laun hækkað um 63% , mesta allra atvinnugreina
- Hagnaðarhlutfall fyrir skatta og gjöld árið 2022 var aðeins 5,4%.
- 48% fyrirtækja eru 5 ára eða yngri.
Slíkt umhverfi kallar á sérsniðna samninga líkt og önnur lönd gera enda engin önnur grein sem lútir sömu lögmálum. Það yrði seint sagt að flugmenn ættu að vera með sömu samninga og verslunarfólk en af einhverjum ástæðum sjá hvorki SA eða verkalýðsfélögin ástæðu til að gera sérsamninga sem taka mið af starfsumhverfinu heldur keyra áfram hækkanir þar sem engin innistæða er fyrir.
Brotið og ósamkeppnishæft rekstaraumhverfi skapar ósjálfbæra atvinnugrein. Það virðist ekki skipta verkalýðshreyfinguna nokkru einasta máli að kafsigla fyrirtækjunum sem skjólstæðingar þeirra vinna hjá. Ekki virðist vera neinn skilningur á alvarleika málsins. Allt bendir til áframhaldandi launahækkana sem mun einfaldlega skila samdrætti í framboði, enn fleiri gjaldþrotum auk þess að skapa kjör aðstæður fyrir ólöglega atvinnustarfsemi.
Á veitingamarkaði starfa rúmlega 1000 fyrirtæki, lang flest lítil og meðalstór og hjá þeim starfa rúmlega 10.000 starfsmenn. Þetta er mikilvæg atvinnugrein fyrir fagfólkið okkar sem er í fremsta flokki, sem gerir skólafólki kleift að ná sér í tekjur með námi, heldur uppi mikilvægri menningu til að draga hingað ferðamenn ásamt því að gera okkur Íslendingum kleift að gera okkur glaðan dag.
Undirrituð fyrirtæki skora á samningaðila að horfa raunverulega á þá innistæðu sem greinin á og gera kjarasamninga sem stuðla að því að koma á samkeppnishæfu rekstrarog starfsumhverfi en ekki skapa starfsumhverfi sem keyrir veitingarekstur í þrot.
- 2Guys
- American Bar
- Amma don
- Apótek
- Askur
- Bastard
- Bautinn
- Bergnótt
- BK Kjúklingur
- Blackbox
- Bodega Reykjavík
- Bragðlaukar
- Brand Vín & Grill
- Brass Kitchen & Bar
- Brasserie Kársnes
- Brewdog Reykjavík
- Brikk brauð og eldhús
- Bryggjufélagið
- Craft Burger Kitchen
- D8 veitingar
- Danska kráin
- Deig
- Dillon
- Dragon Dim Sum
- Duck & Rose
- Einsi Kaldi
- Enski barinn
- Finnsson Bistro
- Fiskfélagið
- Fiskmarkaðurinn
- Fjallkonan
- Fjöruborðið
- Flatbakan
- Flatey
- Fönix
- Forréttabarinn
- Frederiksen Ale House
- Friðriksgáfa
- Gaming Arena
- Gamla bíó
- Gamli Baukur
- Gamli Gaukurinn
- GJ Veitingar
- GOTT restaurant
- Greifinn
- Grillmarkaðurinn
- Hamborgarabúlla Tómasar
- Hipstur
- Hlöllabátar
- Hús Máls og menningar
- Húsavík Öl
- Hygge
- Icelandic street food
- Irishman pub
- Íslenski barinn
- Kaffi krús
- Kaffi Laugalækur
- Kaffibarinn
- Kaldi bar
- Kastrup
- Kex
- Kiki -queer bar
- Kol Restaurant
- Kringlukráin
- Kröst
- La Barceloneta
- Langbest
- Laundromat Café
- Le KocK
- Lebowski bar
- Local
- Lux veitingar
- Mandi
- Matarkjallarinn
- Matbar
- Mathús Garðabæjar
- Matur og drykkur
- Menam
- Monkeys
- Múlaberg bistro & bar
- Næs
- Nauthóll
- Nings
- OTO
- ÓX restaurant
- Pablo Discobar
- Petersen svítan
- Pizzan
- Plantan Kaffihús
- Preppbarinn
- Prikið
- Public House
- Punk
- Ráðagerði
- Rauða Ljónið
- Riverside restaurant
- ROK
- Romano Pasta
- Röstí Burger & Beer
- Rub 23
- Sælkerabúðin
- Sæta Svínið
- Serrano
- Session Craft Bar
- Sigló Veitingar
- Sjávargrillið
- Sjávarpakkhúsið
- Skál
- Skúli Craft Bar
- Slippurinn
- Sólon
- Spretturinn
- Steikhúsið
- Subway
- Sumac
- Sushi Corner
- Sushi Social
- Takkó
- Tapas barinn
- Tasty
- The Gastro Truck
- Tipsý
- Torgið restaurant
- Tres locos
- Tryggvaskáli
- Valhalla Restaurant
- Veður
- Veitingahúsið Suður-Vík
- Verbúðin 66
- Yuzu
- Pizza 107
- Samúelsson Matbar
- Fröken Selfoss
- Groovís
- Veisluþjónusta Suðurlands
- Ramen Momo
Höfundur: Aðalgeir Ásvaldsson – framkvæmdastjóri SVEIT (samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði).
-
Uppskriftir5 dagar síðan
Meðlæti með jólamatnum
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Girnilegt camembert jólatré með döðlu og pekan krönsi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðan
Mikil uppbygging framundan á Hofsstöðum – Veitingastaðurinn með eigin framleiðslu og hráefni úr heimabyggð
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Ekta rjómaís með hvítu súkkulaði og piparkökum – Fullkominn á veisluborðið yfir hátíðarnar
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Hátíðar opnun Hafsins
-
Frétt22 klukkustundir síðan
34 veitingastaðir birtu matseðil og annað kynningarefni bara á ensku
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Uppskrift – Fylltar kjúklingabringur með eplum, Dala höfðingja og rósmarín-hlynsírópsgljáa
-
Markaðurinn22 klukkustundir síðan
Hátíðarkveðjur