Vertu memm

Freisting

Hollara að nota bygg en hveiti

Birting:

þann

Hægt er að auka hollustu brauðvara með því að nota að hluta til bygg í staðinn fyrir hveiti, að því er fram kemur í rannsókn Matís (Matvælarannsóknir Íslands) og Landbúnaðarháskóla Íslands. Í byggi eru trefjaefni sem geta lækkað kólestról í blóði og haft dempandi áhrif á blóðsykur.

Ólafur Reykdal verkefnastjóri hjá Matís, segir í fréttatilkynningu að hægt sé að auka hollustu brauðvara með því að nota að hluta til bygg í staðinn fyrir hveiti.

„Frá manneldissjónarmiði er mikilvægt að auka magn trefjaefna í fæði Íslendinga. Það er sérstaklega áhugavert að í bygginu eru vatnsleysanleg trefjaefni sem kallast beta-glúkanar. Þessi trefjaefni geta lækkað kólesteról í blóði og haft dempandi áhrif á blóðsykur.“

Ólafur nefnir að í tilraunabakstri úr byggi, sem hafi farið fram í þremur bakaríum, hafi náðist fullnægjandi árangur fyrir brauð með allt að 40% byggi á móti 60% af hveiti. „Það er því hægt að mæla með því að bökunariðnaðurinn fari að nota bygg í framleiðslu sína,“ segir Ólafur í fréttatilkynningu.

Þá var næringargildi metið fyrir íslenskt bygg og reyndist það sambærilegt við það sem gerist erlendis. Öryggi byggs var metið með mælingum á örverum. Kólígerlar, Bacillus cereus og Clostridium perfringens greindust ekki og fjöldi myglusveppa var lágur.

„Allar mælingar benda því til að íslenska byggið henti vel til manneldis,“ segir Ólafur Reykdal hjá Matís.

Greint frá á Mbl.is

[email protected]

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss
Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið