Uppskriftir
Hátíðaruppskrift matreiðslumeistarans
Eftirfarandi uppskriftir eru fyrir fjóra.
Forréttur
Hvítlauksristaður humar
16 stk. Humarhalar
2 msk. Smjör
2 stk. Hvítlauksgeirar
1 pk. Blandað salat
Aðferð:
Takið humarinn úr skelinni og hreinsið. Bræðið smjörið á pönnu og pressið hvítlaukinn útí með hvítlaukspressu (passið að brenna ekki laukinn.) Látið humarhalana útí vel heitt smjörið og steikið þar til humarinn er tilbúinn. Gott er að krydda með örlitlu salti og pipar.
Takið salatið, deilið því á fjóra diska og raðið humrinum ofan á.
Gott er að bera fram ristað brauð með réttinum. Einnig er gott að bræða meira smjör á pönnunni og nota sem sósu.
Aðalréttur
Léttreyktur lambahryggur
1 stk. Léttreyktur lambahryggur
21. Vatn
2 dl. Rauðvín
1 stk. Ferskur ananas
Sinnepsgljái
5 msk. Sættsinnep
2 msk. Dijon sinnep
5 msk. Púðursykur
Aðferð:
Setjið vatn, rauðvín og hrygginn í ofnpott eða eldfast form og sjóðið í ofni við 180°C í 1 klst. Hellið vökvanum í pott og notið í sósu. Hrærið saman sinnepsgljáann og smyrjið á hrygginn. Skerið ananasinn í sneiðar og raðið á hrygginn og smyrjið sinnepsgljáa yfir.
Setjið í miðjan ofn á yfirhita í 200°C í u.þ.b. 20 mín. Gott er að stilla ofninn á grill við 250°C síðustu mínúturnar.
Meðlæti: Sykurbrúnaðar kartöflur, létt soðið grænmeti og sósa úr soðinu.
Eftirréttur
Súkkulaði ís
5 dl. Rjómi
1 dl. Sykur
2 stk. Eggjarauður
2 stk. Egg
1 stk. Vanillustöng
100 g. Súkkulaði
Aðferð:
Léttþeytið rjómann og kælið. Skafið innan úr vanillustönginni. Setjið eggin, eggjarauðurnar, vanilluna og sykurinn í hrærivélaskál og þeytið á fullum krafti í 10 mín.
Skerið súkkulaðið fínt niður og setjið í skál. Klæðið form að innan með plastfilmu og passið að ýta filmunni vel út í alla kanta.
Blandið varlega saman rjómanum, eggjablöndunni og súkkulaðinu. Hellið ísnum í formið og setjið í frysti í 6 – 8 klst.
Ábending:
Hægt er að nota hvernig súkkulaði sem er. Gott að bera fram ávexti og heita súkkulaðisósu með.
Höfundur er Alfreð Gústaf Maríusson matreiðslumeistari.
Uppskriftirnar voru birtar fyrst í tímaritinu Hjálmar, árið 2010.
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn2 dagar síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember





