KM
Hátíðarkvöldverður Klúbbs matreiðslumeistara
Kæri félagi!
Nú er hinn árlegi Hátíðarkvöldverður klúbbsins framundan þann 9. janúar í Turninum í Kópavogi.
Segja má að uppselt sé og er það framar vonum og styrkir þá skoðun okkar í framkvæmdarstjórn að mikið uppbyggingarstarf
varðandi kvöldverðinn undanfarin ár sé að skila sér til okkar í auknum gæðum og ekki síst væntingum gesta.
Aldrei hafa jafnmargir stjörnukokkar okkar tekið þátt og mun það gefa kvöldinu sérstakan blæ, ásamt því að tækninni verður beitt óspart til kynningar á starfi okkar.
Til þess að svona galakvöldverður verði eins fullkominn og hægt er þurfa margar hendur að koma að honum.
Viljum við því leita til ykkar, ágætu félagar, að aðstoða við öll þau verkefni stór sem smá sem inna þarf að hendi á meðan á kvöldverði stendur.
Biðjum við ykkur að pressa flottasta jakkann ykkar svörtu buxurnar og hafa hvíta síða svuntu meðferðis. Hattstrompar eru útvegaðir á staðnum.
Þetta kvöld snýst að mestu leiti um að hafa gaman af því sem við gerum best, sýna sig og sjá aðra. Því væntum við að sjá sem flest ykkar til að njóta kvöldsins með okkur.
Verkefnum verður skipt niður á vaktir og því er mikilvægt að þið tilkynnið þátttöku ykkar í síma 691-1777 eða á
netfangið: [email protected]
Bestu nýárskveðjur,
Steinn Óskar Sigurðsson
Formaður nefndar um Hátíðarkvöldverð KM
Sími 691-1777 [email protected]
HÁTÍÐARKVÖLDVERÐUR
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Markaðurinn2 dagar síðanRational í 50 ár og árið 2025 metár á Íslandi
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Food & fun4 dagar síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn
-
Markaðurinn5 dagar síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag
-
Markaðurinn3 dagar síðanMyndir: Peter De Wandel heimsótti Garra og kynnti nýjungar frá Ardo
-
Markaðurinn3 dagar síðanBragðmikil taco súpa með cheddar og sýrðum rjóma
-
Markaðurinn2 dagar síðanMinnkum matarsóun




