Freisting
Hækka verðið í takt við hækkun birgja
|
|
Margir fastakúnnar veitingastaðarins Thai Koon á Ísafirði ráku upp stór augu nú um helgina þegar þeir sáu að verð á réttum hafði hækkað um 25%.
Þannig kostar miðstór skammtur, sem áður var á 710 kr. nú 890 kr. Að sögn Shirans Þórissonar, eins eigenda Thai Koon kemur verðhækkunin til vegna hækkana birgja á hráefni. Við ráðum ekkert við það þegar hráefnið hækkar svona, og við þurftum bara að taka verðið til gagngerrar endurskoðunar. Við finnum vissulega fyrir viðbrögðum viðskiptavina við hækkuninni, en við höfum í staðinn reynt að bæta þjónustuna. Shiran bendir á að svipaðir veitingastaðir á höfuðborgarsvæðinu, s.s. Nings og Shalimar selji aðalrétti á 1100 til 1500 krónur. Þetta eru austurlenskir staðir báðir tveir, með svipaða þjónustu og við bjóðum upp á.
Thai Koon var opnað árið 2002 og var þá í eigu Grétars Helgasonar og konu hans, Eddu Ban Gon Khiansantia. Fyrir ári síðan keyptu forsvarsmenn veitingastaðarins Fernandos veitingastaðinn. Verð hefur ekki hækkað á veitingastaðnum síðan hann var opnaður fyrir fimm árum síðan. Í mars lækkaði verðið hinsvegar, þegar virðisaukaskattur á matvöru var lækkaður.
Greint frá á Vestfirska vefnum Bb.is
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanSkráning hafin í Negroni vikuna 2026
-
Keppni3 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanFærri brugghús loka í Bretlandi
-
Markaðurinn6 dagar síðanUmhverfisvottuð gæði fyrir hótel og gististaði
-
Frétt6 dagar síðanVarað við skordýrum í dilli
-
Markaðurinn4 dagar síðanIðan fagnar 20 ára afmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
-
Frétt4 dagar síðanInnihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
-
Markaðurinn3 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi



