Freisting
Eyfirsk matargerð á Humarhúsinu

Ólafur Haukur Magnússon matreiðslumaður Humarhússins, Friðrik Valur Karlsson matreiðslumaður og eigandi Friðrik V á Akureyri og Helgi aðstoðamaður Friðriks
Það myndaðist strax hjá mér eftirvænting er ritstjóri Freisting.is spurði hvort ég gæti farið á Humarhúsið og smakkað á matseðli áðurnefnds matreiðslumeistara, og að auki mætti ég taka einn gest með mér og kom strax upp í hug mínum að þetta hefði meistari minn örugglega áhuga á sem og reyndin varð.
Við vorum mættir um sexleitið ég og Sigurvin, vel tekið á móti okkur og boðið til sætis og er maður hafði litið í kringum sig á staðnum, fann maður hvernig vellíðunar tilfinningin náði tökum á manni og finnst mér það til góðs fyrir staðinn.
Þá hófst máltíðin með að Friðrik kom sjálfur með diskana og útskýrði hvað væri á þeim og hvernig eldun væri á mismunandi hráefni og gekk svo út matseðillinn og fórst honum það einstaklega vel úr hendi enda vanur að vera inni í sal.
Hér kemur svo matseðillinn:

Forréttur
Norðlenskt hangikjöt með laufabrauði rauðrófum og grænum baunum

Fiskréttur
Ekta saltfiskur með hríseyskri bláskel, rófum og dökkri Kaldafroðu

Milliréttur
Krækiberjakrapís

Aðalréttur
Humarfyllt lambakóróna með mysuostaskorpu,
eyfirskum möndlukartöflum og fjallagrasasósu

Fordesert
Rúgbrauðssúpa með broddís

Eftirréttur
KEA heims SKYR
Ef þetta er ekki íslenskt eldhús þá er það ekki til, allir áttu þeir sammerkt réttirnir að smakkast afburðarvel og ekki hægt annað en að hrósa honum í hásterti fyrir og vonandi verður þetta til þess að fagmenn utan af landi komi með sýna heimabyggðar eldamennsku og hráefni til borgarinnar og höfuðborgarmenn heimsækji landsbyggðina og sýni þeim hvað sé heitast í borginni hverju sinni.
Viljum við á Freisting.is þakka fyrir okkur bæði til Friðriks og Humarhúsmanna fyrir ógleymalega kvöldstund í hjarta bæjarins.
Nokkrar myndir frá kvöldinu er hægt að skoða í myndasafninu með því að smella hér.
/ Almennar myndir / Friðrik – Humarhúsið
Ljósmyndir tók Guðjón Þór Steinsson matreiðslumeistari
-
Markaðurinn1 dagur síðanJóhannes Kristjánsson hefur hafið störf hjá Bako Verslunartækni (BVT)
-
Pistlar4 dagar síðanEndurvakning Klúbbs Framreiðslumeistara
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanErtu búinn að taka sunnudaginn frá fyrir BCA-verðlaunin?
-
Markaðurinn2 dagar síðanViltu reka kaffihús í hjarta Miðborgarinnar
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanBarþjónar fá einstakt tækifæri til að fylgjast með sérfræðingum að störfum
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanAtvinnurekendur bregðast við: Styttri opnun og færri vaktir á krám
-
Markaðurinn4 dagar síðanGlæsilegar nýjungar fyrir veitingastaði: Phoenix línan, fjölhæfar skvísur og nýir veislubakkar
-
Vín, drykkir og keppni8 klukkustundir síðanÞessir barir og barþjónar eru tilnefndir til BCA á Íslandi





