Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Elias Johansson tekur við eldhúsinu á Síldarkaffi í sumar

Birting:

þann

Elias Johansson tekur við eldhúsinu á Síldarkaffi í sumar

Elias Johansson

Það þarf ekki alltaf að bíða eftir helgi til að gera sér dagamun. Þriðjudaginn 31. mars klukkan 19:00 verður boðið upp á sérstakan kvöldverð á Síldarkaffi á Siglufirði, þar sem sænski kokkurinn Elias Johansson leiðir eldhúsið í samstarfi við Ted Karlberg.

Elias, sem kemur frá Karlskrona í Svíþjóð, er á leið í sína fyrstu heimsókn til Íslands og hefur mikinn áhuga á að kynnast bæði staðnum og fólkinu. Á sama tíma hyggst hann kynna sína eigin matargerð fyrir gestum, þar sem norræn hráefni fá að njóta sín með áhrifum frá japanskri matargerð og franskri hefð.

Síld, sjávarfang og lamb í aðalhlutverki

Í sameiningu munu þeir Elias og Ted reiða fram matseðil þar sem síld, sjávarfang og lambakjöt verða í forgrunni, en markmiðið er að skapa eftirminnilega matarupplifun í skandinavískum anda.

Ted er vel kunnugur Síldarkaffi og hefur komið að verkefninu frá upphafi, meðal annars með því að tengja staðinn við erlenda matreiðslumenn á borð við Elias og Joakim Bengtson, sem stýrði eldhúsinu síðastliðið sumar.

„Hef ekki litið um öxl síðan“

Að sögn Eliasar sjálfs kviknaði áhugi hans á matreiðslu snemma.

„Þegar ég var 12 ára gamall ákvað ég að verða kokkur og hef ekki litið um öxl síðan,“

segir Elias Johansson í samtali við veitingageirinn.is.

Hann segir matargerð sína eiga rætur í Blekinge í suðurhluta Svíþjóðar, þar sem áhersla sé lögð á að sameina norræn hráefni með alþjóðlegum áhrifum. Undanfarin tíu ár hefur hann rekið veitingastaði og tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum þar sem gæði hráefnis og fagmennska eru í forgrunni.

„Fyrir mér snýst allt um að gott hráefni fái að njóta sín til fulls, að það sé valið á réttum tíma og í sínum bestu gæðum, og sótt með ábyrgum og sjálfbærum hætti,“

segir hann.

Síldarkaffi á Siglufirði

Elias Johansson tekur við eldhúsinu á Síldarkaffi í sumar

Maturinn á að segja sögu

Elias leggur jafnframt áherslu á að gera fágaða matargerð aðgengilega breiðum hópi gesta.

„Markmið mitt er að gera fágaða matargerð aðgengilega öllum, án tilgerðar. Fyrir mér á matur að vera lifandi upplifun sem segir sögu,“

bætir hann við.

Kvöldverðurinn fer fram þriðjudaginn 31. mars klukkan 19:00 og er sætafjöldi takmarkaður. Verð á mann er 9.800 krónur og er áhugasömum bent á að tryggja sér sæti með því að bóka borð í síma 467 1604 eða 865 2036, eða með því að senda tölvupóst á [email protected].

Vandaður matseðill kvöldsins

Matseðill kvöldsins á Síldarkaffi þriðjudaginn 31. mars endurspeglar skandinavíska nálgun Eliasar Johansson og Teds Karlberg.

Elias Johansson tekur við eldhúsinu á Síldarkaffi í sumar

Myndir: Facebook / Síldarkaffi

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið