Sigurður Már Guðjónsson
Eldur í nýju húsnæði Omnom
Nýtt húsnæði súkkulaðigerðarinnar Omnom að Hólmaslóð 4 varð eldi að bráð í gær. Húsnæðið er á tveimur hæðum og verður fyrirhuguð verksmiðja á þeirri neðri en verslun á efri hæðinni. Eldurinn hélt sig á efri hæð og betur fór en á horfðist að sögn eiganda.
Til stendur að opna verksmiðjuna eftir um það bil tvo mánuði en hún verður mun afkastameiri en núverandi verksmiðja við Austurströnd. Framkvæmdir eru þó ekki mjög langt á veg komnar og ekki er búið að flytja vélar eða áhöld, að því er fram kemur á mbl.is.
Sjá einnig: Eldur að Hólmaslóð 4
Að sögn Kjartans Gíslasonar, eins eiganda Omnom, er einungis búið að leggja rafmagn og setja upp veggi á neðri hæð og engar innréttingar eru komnar í verslunina á efri hæð.
Hann segir eitthvað vatn hafa lekið niður á neðri hæðina en að öðru leyti slapp hún. Ekki er búið að leggja mat á umfang tjónsins á efri hæðinni.
„Mér skilst að þetta sé ekkert verulegt en það á eftir að fara betur yfir þetta í dag,“
segir Kjartan í samtali við mbl.is.
Sjá einnig: Báðir eldarnir slökktir
Hann segir fréttir af brunanum hafa verið áfall þar sem framkvæmdir hafa verið á fullu í nokkrar vikur.
„Ég hugsa þó að þetta muni ekkert tefja framkvæmdirnar, efri hæðin leit frekar illa út. Það var búið að brjóta rúðuna og allt var svart þarna inni,“
segir hann.
Stefnt er á að opna verslunina á svipuðum tíma og verksmiðjuna.
„Það verður allavega fyrir sumarið. En við þurfum að vera komnir með framleiðsluna inn áður en við getum opnað,“
segir hann.
Kjartan hrósar þá slökkviliðinu sem hann segir hafa brugðist hratt við.
„Þeir voru mættir innan tveggja til þriggja mínútna og brugðust mjög vel við þessu.“
Mynd af Hólmaslóð 4: skjáskot af google korti
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn2 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Markaðurinn4 dagar síðanSecret Garden vörulínan stækkar hjá Drykkur heildsölu





