Uncategorized
Einn færasti vínþjónn landsmanna í umdeildu tímariti

Mikil umræða er um nýjasta tímarit Ísafoldar, þar sem áfengi er auglýst tólf til þrettán síðum í nóvembertölublaðinu. Heil opna er lögð undir víntegundina Campari og önnur opna undir Beefeater gin. Einnig eru í blaðinu heilsíðuauglýsingar á koníaki, viskýí, vodka, rauðvíni og bjór.
Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Ísafoldar segir að í blaðinu sé vönduð umfjöllun Stefáns Guðjónssonar, eins færasta vínþjóns landsmanna, um vín og áfengi. „Þetta er eins og hvert annað umfjöllunarefni og þjónusta við lesendur. Eins og fleirum þykir mér gæta tvískinnungs hér á landi. Áfengislögin svipta tímaritin ákveðnum tekjumöguleika á sama tíma og þau leyfa áfengisauglýsingar í gríðarlegum fjölda erlendra tímarita sem til sölu eru í verslunum.
Hvers konar auglýsingar á áfengi og einstökum áfengistegundum eru bannaðar samkvæmt lögum frá 1998. Enn fremur er bannað að sýna neyslu eða hvers konar aðra meðferð áfengis í auglýsingum eða upplýsingum um annars konar vöru eða þjónustu, eins og segir í tuttugustu grein laganna.
Brögð hafa verið að því bann laganna við áfengisauglýsingum sé sé ekki virt og hafa verið höfðuð mál vegna þessa. Hins vegar hefur yfirvöldum ekki þótt ástæða til að amast við kynningarritum eða þemabæklingum ÁTVR um vín og áfengi sem dreift er í verulegu upplagi. Fyrir rúmri viku barst Reyni Traustasyni, fyrrum ritstjóra Ísafoldar og Mannlífs, bréf frá lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins þar sem ekki er talið efni til þess að taka til greina kæru hans á hendur ÁTVR vegna meintra áfengisauglýsinga, en þetta kemur fram á fréttavef Dv.is.
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or7 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Keppni5 dagar síðanHrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
-
Markaðurinn6 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila
-
Markaðurinn5 dagar síðanTandur fyrst á Íslandi til að Svansvotta snyrtivörur
-
Markaðurinn6 dagar síðanSnædís Xyza keppir í Bocuse d’Or Europe í dag





