Uncategorized
Dæmdur í sekt fyrir að láta birta áfengisauglýsingu

Hæstiréttur hefur dæmt framkvæmdastjóra heildsölufyrirtækisins Rolf Johansen & Co. í hálfrar milljónar króna sekt fyrir að láta birta auglýsingar um áfengan bjór í nokkrum íslenskum fjölmiðlum.
Forsvarsmaður annars fyrirtækis var hins vegar sýknaður af ákæru fyrir samskonar brot þar sem hvorki hann né fyrirtækið voru nafngreind í auglýsingunum eða vísað til þeirra með neinum hætti.
Hæstiréttur segir í niðurstöðum sínum varðandi Rolf Johansen & Co., að birting auglýsinganna, sem voru fimm talsins, væri andstæð áfengislögum. Hins vegar hafi framkvæmdastjórinn hvorki verið nafngreindur né vísað til fyrirtækisins í fjórum auglýsingunum og því bæri framkvæmdastjórinn ekki refsiábyrgð á þeim. Fimmta auglýsingin var auðkennd heimasíðu, sem beri með sér að hún sé á vegum Rolf Johansen & Co. Sé auglýsingin þar af leiðandi nægjanlega tengd því fyrirtæki svo að framkvæmdastjórinn verði talinn bera ábyrgð á henni.
Hæstiréttur féllst ekki á að ákvæði áfengislaga um auglýsingabann bryti gegn ákvæðum stjórnarskrárinnar eða skuldbindingum íslenska ríkisins samkvæmt EES-samningnum.
Greint frá á Mbl.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanBragð af Loire-dalnum á Matur & Drykk
-
Frétt6 dagar síðanRetreat við Bláa Lónið eina íslenska hótelið með tvo Michelin-lykla
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanBoðið í ferð fyrir fagfólk í veitingageiranum
-
Keppni4 dagar síðanNegroni hlaupið lífgar upp á Austurvöll
-
Markaðurinn5 dagar síðanNathan kynnir nýja virkni sem flýtir fyrir daglegum innkaupum
-
Keppni5 dagar síðanManuel Schembri vann brons fyrir Íslands hönd



