Freisting
Breskir dagar á Grand Hótel
Þeir Grand menn hafa verið iðnir við að fá erlenda gestamatreiðslumenn til landsins til að kynna landanum eldamennsku viðkomandi landa og nú var komið að Bretlandi.
Sá matreiðslumaður sem var fulltrúi þeirra heitir Simon Rogers og rekur veitingastað The Boars Nest, sem er í hafnarborginni Hull í Yorkshire en staðinn opnaði hann árið 2004, en þess má geta að Simon er ættaður af þessu svæði.
|
|
|
|
|
|
|
Það var virkilega gaman að hitta kallinn, ljúfur og afslappaður og ekki skemmdi fyrir að hann hafði verið á Savoy Grillinu stuttu eftir að kallinn hætti þar.
En snúum okkur að matnum en crew 1 frá Freisting.is var mætt á svæðið til að taka út veigarnar og kemur hér útkoman:

1. réttur
Smooth Chicken liver pate tart, quail egg & crispy bacon salad, micro herbs
Maður fann strax að þetta var eldað á breskan máta, minna af rjóma, enginn sætleiki og frekar rammara bragð af pateinu en virkilega gott á bragðið

2. réttur
Goat cheese mousse, pickled beetroot & baby onions, apple and walnuts mayonnaise
Hér kom eitt sterkasta einkenni breska eldhúsins inn með ofurkrafti en það er edik og helst til of mikið þannig að mildu brögðin í frauðinnu og eplamayonnaiseinu liðu fyrir, að öðru leiti alveg prýðilegur réttur, en svona er bresk eldamennska

3. réttur
Lamb loin fillet, potatoes gratin, fine beans & bacon, port meat juices
Glæsileg samsetning á brögðum og hrein unun að borða


4. réttur
Breast of duck, bubble & squeak in pastry young spinach and shallot salad
Breskara verður það varla, önd, kartöflumauk, rótargrænmeti og smjördeig, frábær framsetning og brögðin góð og skemmtileg nýr máti á spínatinu sem alveg smellpassaði með

5. réttur
Pistachio cream caramel, crystallized berries
Virkaði frekar tómlegur á mann við fyrstu sýn en vann sig inn með hverjum munnbita og endaði sem prýðisréttur
Í heild sinni var þetta hin ánægjulegasta kvöldstund góður matur og góð þjónusta og fannst mér það svolítið skemmtilegt hvað Simon var trúr breska eldhúsinu.
Við á Freisting.is þökkum fyrir okkur og hlökkum til að fylgjast með hvað Grand menn draga næst upp úr hattinum til að kynna okkur íslendingum.
Myndirnar með eru skotnar af Matta Rambó sem var í stuði .
-
Markaðurinn3 dagar síðanRational í 50 ár og árið 2025 metár á Íslandi
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Food & fun5 dagar síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn
-
Markaðurinn6 dagar síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag
-
Markaðurinn4 dagar síðanMyndir: Peter De Wandel heimsótti Garra og kynnti nýjungar frá Ardo
-
Markaðurinn4 dagar síðanBragðmikil taco súpa með cheddar og sýrðum rjóma
-
Markaðurinn3 dagar síðanMinnkum matarsóun
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanÆtti svona saké viðburður líka heima á Íslandi?









