Viðtöl, örfréttir & frumraun
Böggvisbrauðin úr fyrsta íslenska viðarhitaða brauðofninum komin í sölu
Flest höfum við áhuga á að stunda heilbrigðan lífsstíl og reynum að neyta heilnæms fæðis, því við vitum að gott mataræði er stærsti þátturinn í því að viðhalda góðri heilsu.
Verandi aðalfæða í stórum hluta heimsins og ein elsta manngerða matvaran, fer brauð með lykilhlutverk í gæðum næringar okkar dags daglega. Síðustu ár hefur þó læðst vafi að þeirri hugmynd að það sé hollt fyrir okkur, í svo miklum mæli að í dag er fólki hreinlega ráðlagt að forðast neyslu þess.
„Ég vil, með því að leiða saman fyrsta flokks hráefni og aldagamla súrdeigs-bakstursaðferð, ganga til liðs við þann hóp bakara sem vilja hjálpa brauðinu að vinna orðspor sitt til baka!“
Segir Mathias Spoerry.
Mathias Spoerry og Ella Vala Ármannsdóttir búa á Böggvisstöðum en þau hafa handsmíðað gullfallegan steinofn, sem er hitaður upp með íslensku timbri og baka súrdeigsbrauð úr lífrænu korni frá Frakklandi á Böggvisstöðum í Svarfaðardal. Ekki er vitað um samskonar ofn hér á íslandi.
Böggvisstaðir er bær í Svarfaðardal skammt frá Dalvík.
Í brauðið er eingöngu notað nýmalað lífrænt hveiti, án íblöndunarefna, en þannig varðveitast öll góð steinefni og vítamín, sem annars tapast úr hveitinu með tímanum.
Um Mathias Spoerry, brauðgerðarmann
Mathias er söngvari að mennt og með meistaragráðu í miðaldatónlist. Hann er frá Frakklandi en hefur búið á Íslandi í sex ár. Mathias er kvæntur Ellu Völu Ármannsdóttur og saman eiga þau rúmlega ársgamlan son.
Það var ekki nema fyrir nokkrum árum sem að áhuginn á súrdeigsbakstri kviknaði hjá Mathias, sem varð fljótlega að ástríðu. Mathias ákvað að taka ástríðuna einu skrefi lengra og fór til Frakklands í nokkra mánuði til að þjálfa sig sem brauðgerðarmaður. Í kjölfarið fór hugmyndin um eigið súrdeigsbrauð-bakarí að verða að veruleika.
Hér er áhugavert dæmi um byggingu á samskonar ofni.
Mathias Spoerry, brauðgerðarmaður í viðtali í N4
Myndir: facebook / Böggvisbrauð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn5 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Keppni4 dagar síðanNational Fish & Chip Awards: Íslenskur sigur við Mývatn vekur athygli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Markaðurinn3 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð
-
Markaðurinn7 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Markaðurinn4 dagar síðanHefur þú smakkað svart pepperoni?















