Freisting
Bakarasveinafélag Íslands 100 ára
Árið 1908 voru kjör bakarasveina orðin svo léleg og margir þeirra óánægðir á vinnustöðum sínum að raddir tóku að heyrast þess efnis að nauðsynlegt væri orðið að stofna hagsmunafélag bakarasveina. Eftir umræður og fundarhöld, sem ekki voru alltaf vel séð af bakarameisturunum, var stofnfundur hins nýja hagsmunafélags haldinn þann 5. febrúar árið 1908 að Þingholtsstræti 9.
Eins og við mátti búast var fyrsta verk hins nýja félags, sem bar nafnið Bakaraveinafélag Íslands, að skipa í nefnd sem skyldi gera rækilega úttekt á stöðu bakarasveina og finna leiðir til að bæta kjör þeirra og nám.
Þessi nefnd var nú orðin milliliður í samningum nema við meistara sína og það gátu margir bakarameistarar ekki sætt sig við. Þeir hefðu frekar kosið að halda sig við gamla kerfið og semja beint við nema sína um kaup og kjör en urðu að lokum að sættast við þennan nýja samningsaðila. Samkomulag náðist að lokum og fól það í sér töluverða réttarbót fyrir bakaranema en ekki miklar kauphækkanir.
Fyrsti samningurinn milli bakarameistara og hins nýja félags bakarasveina var undirritaður 14. maí 1908 og hækkaði við það kaup nemanna í 18 kr. á viku og vinnudagur þeirra takmarkaðist við 11 stundir. Bakarasveinafélaginu tókst á næstu áratugum eftir 1908 að ná fram nýjum samningum án verkfalla og á tímabilinu 1919 – 1932 náðust t.d. umtalsverðar kjarabætur.
Aðsent
-
Starfsmannavelta3 dagar síðan
Er Bryggjan hætt starfsemi?
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Koffmann er loksins fáanlegt á Íslandi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun8 klukkustundir síðan
Ný vefbók fyrir matvælakennslu og áhugafólk um matreiðslu – Þér er boðið í útgáfupartý
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Wolt hefur sendingar á Stokkseyri og Eyrarbakka
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðan
Matargestir ferðast aftur í tímann til villta vestursins – Myndir og vídeó
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðan
Fyrsti viðburður ársins hjá Kampavínsfjelaginu – 6 rétta matseðill með kampavíns pörun
-
Keppni1 dagur síðan
Graham’s Blend Series Kokteil keppni 2025
-
Frétt2 dagar síðan
Óhæfar saxaðar döðlur til neyslu