Vertu memm

Frétt

Alvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma

Birting:

þann

René Redzepi - Noma

René Redzepi

Alvarlegar ásakanir um ofbeldi og niðurlægjandi framkomu í eldhúsi hins heimsþekkta veitingastaðar Noma í Kaupmannahöfn hafa vakið mikla athygli eftir ítarlega umfjöllun í bandaríska dagblaðinu The New York Times. Veitingastaðurinn hefur um árabil verið talinn einn sá besti í heimi og tengist nafni stjörnukokksins René Redzepi.

Í umfjöllun blaðsins segja tugir fyrrverandi starfsmanna frá erfiðu vinnuumhverfi þar sem skapofsaköst og niðurlæging hafi verið hluti af daglegum veruleika í eldhúsinu. Sumir lýsa því að René Redzepi hafi öskrað á starfsfólk eða sýnt líkamlega hörku þegar álagið var mest. Frásagnirnar ná yfir nokkur ár og varpa ljósi á vinnustaðamenningu sem margir segja hafa einkennst af mikilli pressu.

René Redzepi hefur brugðist við ásökununum og viðurkennt að framkoma hans á árum áður hafi ekki alltaf verið ásættanleg. Hann segir að hann beri ábyrgð á því sem gerðist og að hann hafi reynt að bæta vinnuumhverfið á síðustu árum. Þá hafi verið ráðist í breytingar á skipulagi vinnunnar og lögð meiri áhersla á vellíðan starfsfólks.

Umræðan um vinnuaðstæður í veitingageiranum hefur verið hávær undanfarin ár, ekki síst í kringum fínni veitingastaði þar sem álag og metnaður geta verið gríðarleg. Málið hefur vakið athygli víða í veitingageiranum og kallað fram umræðu um hvernig stjórnun og vinnumenning þróast í eldhúsum.

Mynd: noma.dk

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið