Frétt
Aðalfundur Vínþjónasamtaka Íslands
- Veitingastaðurinn Brass, Hótel Alda
- Laugavegur 66
- Fimmtudagur, 28. Janúar
- Kl: 17:00
Boðið verður uppá léttar veitingar á Brass á meðan ný stjórn kynnir framtíðaráform samtakanna. Farið verður sérstaklega yfir eftirfarandi atriði:
Hvar geta nýir meðlimir skráð sig í Vínþjónasamtökin.
Hvað felst í því að vera meðlimur og hvernig geta samtökin stutt vínþjóna og aðra áhugasama.
Íslandsmeistaramót vínþjóna.
Norðurlandamót vínþjóna 2021 á Íslandi.
Vinsamlegast athugið að þar sem einungis 20 manns komast að vegna sóttvarnaraðgerða óskum við eftir því að áhugasamir hafi samband í gegnum tölvupóst til að staðfesta komu sína.
Ef færri komast að heldur en vilja, er alltaf hægt að hafa samband við okkur í gegnum tölvupóst á [email protected]
Við hlökkum til að sjá ykkur.
Alba E. H. Hough
President – Icelandic Sommelier Association
Forseti – Vínþjónasamtök Íslands
[email protected]

-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMyndasafn: Stóreldhúsið 2026 vel sótt í Laugardalshöll
-
Markaðurinn7 dagar síðanStóreldhússvið Danól verður Vistró
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanFimmtán vín hljóta Gyllta Glasið 2026
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanArnór Ingi og fjölskylda opna Laut í Norræna húsinu – sjáðu matseðilinn hér
-
Áhugavert6 dagar síðanÞrír sólarhringar í Nuuk
-
Markaðurinn3 dagar síðanVel heppnaður haustfagnaður hjá John Lindsay
-
Frétt7 dagar síðanVanilludropar Bónuss teknir úr sölu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanKokkakonur boða til stofnfundar í Bryggjuhúsinu



