Frétt
MATVÍS: kjarakönnun í gangi – Vinningar fyrir þátttöku
Mikilvægur liður í þjónustu MATVÍS er að veita félagsfólki upplýsingar um kjarasamningsbundin réttindi og markaðslaun. Varða – Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins sér þessa dagana um framkvæmd könnunar um kjör félagsfólks MATVÍS. Félagsfólki hefur borist tölvupóstur og SMS-skilaboð vegna þessa.
Í könnuninni er spurt um laun í september, auk annarra þátta. MATVÍS mun nýta niðurstöðurnar til að geta gefið félagsfólki sínu betri upplýsingar um markaðslaun innan félagsins. Þín þátttaka skiptir miklu máli svo hægt sé að ná sem bestum upplýsingum um kjör félagsfólks.
Vinningar fyrir þátttöku
Örfáar mínútur tekur að svara könnuninni. Nöfn fimm þátttakenda verða dregin út þegar könnun verður yfirstaðin. Þeir munu vinna helgarleigu í orlofshúsum félagsins, utan sumar- og páskatímabila, að eigin vali.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanFimm fagmenn, eitt kvöld og einstök matarupplifun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
-
Markaðurinn17 klukkustundir síðanFullt var út úr dyrum á pylsugerðarnámskeiði landsliðs kjötiðnaðarmanna – Myndir
-
Starfsmannavelta18 klukkustundir síðanTómlegt um að litast í Iðunni mathöll á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanBransa kvöld á Sumac á sunnudag
-
Markaðurinn6 dagar síðanGamla góða draumtertan sem klikkar aldrei
-
Markaðurinn5 dagar síðanDineout mælir með að kíkja á „Vorfögnuð á Austur-Indíafjelaginu“ í apríl
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHeimsklassa gestakokkar á MATEY í maí




