Uppskriftir
Alvöru nautafilesteik Béarnaise
Nautakjöt með Béarnaise-sósu svíkur engan frekar en fyrri daginn.
Fyrir 4
Innihald
1 stk. nautafille (hryggvöðvi)
2 greinar garðablóðberg
1 geiri hvítlaukur
15 ml olía
30 g smjör
Bérnaise-sósa
250 ml smjör
2 eggjarauður
1 msk. Dijon sinnep
1 tsk. vatn
2 tsk. Béarnaise bragðefni eða 2 msk. hvítvínsedik eða smá sítrónusafi
Ferskt eða þurrkað fáfnisgras (estragon)
Salt og pipar
Aðferð
Nautahryggvöðvinn er hreinsaður
af sinum og fitum. Saltið og piprið. Steikin er grilluð vel á báðum hliðum (1–2 mín. á hvorri hlið). Síðan er lundin sett í ofnskúffu með garðablóðbergi, olíu og hvítlauk og látin hvíla í 10 mín.
Hrærið eggjarauður í hrærivél (eða í höndunum)
með Dijon-sinnepi. Færið yfir hita, með vatni í potti, svo gufan hiti upp skálina. Bætið í smjöri í mjórri hægri bunu, þynnið út með vatninu. Bætið í ediki eða bragðefni og kryddið til með fáfnisgrasi, salti og pipar. Passið að sósan hitni ekki of mikið því þá eldast eggjarauðurnar og sósan skilur.
Skerið í þunnar sneiðar
og stráið salti í sárin. Hryggvöðva þarf að skera þunnt svo hann verði ekki seigur.
Myndir og höfundur er Bjarni Gunnar Kristinsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMyndir frá 30 ára afmælishátíð Hótel- og matvælaskólans
-
Áhugavert5 dagar síðanMyndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanGóðgerðarhlaðborð til stuðnings fjölskyldum í Nepal
-
Keppni4 dagar síðanJanus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni
-
Frétt4 dagar síðanVeitingastaðurinn Strikið rýmdur eftir að eldur kom upp
-
Keppni2 dagar síðanMarína Björk bakaranemi sigraði í kleinuhringjakeppninni
-
Keppni3 dagar síðanParís 1920 í aðalhlutverki í árlegum keppnum Garra
-
Markaðurinn3 dagar síðanIðan Fræðslusetur 20 ára – fullt af tækifærum fyrir fagfólk









