Viðtöl, örfréttir & frumraun
Heimabarinn er ný kokteilabók – Andri: „….með nákvæmlega sömu hugmynd í kollinum“
Heimabarinn er kokteilabók eftir barþjónana Ivan Svan Corvasce og Andra Davíð Pétursson.
Í bókinni má finna 63 uppskriftir af fjölbreyttum kokteilum, 19 uppskriftir af heimagerðum sírópum & líkjörum auk fróðleiks um baráhöld, glös, klaka og öll helstu vörumerkin sem notuð eru í nútíma kokteilagerð.
Bókin mun gefa þér innsýn inn í heim barþjónsins og auðvelda þér að koma þér upp þínum eigin Heimabar. Markmið bókarinnar er þú öðlast færni og þekkingu til að framreiða ómótstæðilega kokteila sem vel er tekið eftir.
„….með nákvæmlega sömu hugmynd í kollinum“
„Fyrir ári síðan í miðri covid bylgju komumst við Ivan Svanur að því að við værum með nákvæmlega sömu hugmynd í kollinum. Hugmyndin var að búa til íslenska kokteilabók sem yrði sérstaklega gerð fyrir fólk sem vill læra að gera kokteila heima hjá sér. Enska hugtakið “great minds, think alike” á við í þessu samhengi, því að auki vorum við með sama nafn í huga. Bókin skyldi heita Heimabarinn. Við félagarnir ákváðum að snúa bökum saman og gera bókina í sameiningu.“
Skrifar Andri Davíð um bókina á facebook.
„Það reyndist hárrétt ákvörðun því samstarf okkar hefur verið gjörsamlega frábært. Fyrir menn sem eiga gjarnan erfitt með að setjast niður einbeita sér að einum hlut í einu þá var ómetanlegt fyrir okkur að hafa hvorn annan. Með mikilli þrautseigju, tíma og vinnu þá náðum við markmiðinu okkar og erum að gefa fyrstu íslensku kokteilabókina sem hugsuð er fyrir heima barþjóninn“
Kokteilabókin Heimabarinn kemur bráðlega í forsölu á vefslóðinni www.heimabarinn.is
@Heimabarinn er á samfélagsmiðlum!
Fleiri fréttir af Andra hér og Ivan Svan hér.
Myndir: Heimabarinn.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMijita kynnir La Gran Colombia í Kolaportinu um helgina
-
Keppni3 dagar síðanBenedikt og Guðmundur keppa fyrir Íslands hönd í Butcher Wars
-
Frétt5 dagar síðanNew York Times fjallar um íslensku pylsuna sem þjóðarrétt
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanNýr bjór þróaður með íslensku pylsuna í huga
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Starfsmannavelta4 dagar síðanLaunakostnaður og samdráttur setja Carl’s Jr. rekstur á hliðina
-
Frétt1 dagur síðanKóríanderfræ innkölluð eftir að hættulegt efni greindist
-
Markaðurinn9 klukkustundir síðanEldur er aftur fáanlegur fyrir ostunnendur





