Viðtöl, örfréttir & frumraun
Elsta sveitaball Vestfjarða haldið 17. júlí – Allir gestir fá rabarbaragraut með rjóma
Hið árlega Ögurball verður haldið í Ögri við Ísafjarðardjúp laugardaginn 17. júlí n.k. Aðgöngumiða fylgir tjaldstæði, aðgangur að sveitaballinu óviðjafnanlega og rabarbaragrautur með rjóma. Hátíðin byrjar með Barsvari „pub quiz“ föstudagskvöld 16. júlí, fylgt eftir með brennu og brekkusöng um kvöldið.
Á laugardegi verður söguganga um svæðið sem endar með messu í Ögurkirkju. Krakkaball verður haldið seinnipartinn í samkomuhúsinu og svo er sjálft Ögurballið um kvöldið. Stuðbandið Halli og Þórunn spila fyrir dansi eins og þau hafa gert síðustu 22 ár. Næg tjaldstæði eru á svæðinu og vakin athygli á 18 ára aldurstakmarki inn á svæðið.
Andlit Ögurballsins sem er opinber sendiherra viðburðarins er Mosfellingurinn Una Hildardóttir sem segir að sem unnandi alvöru sveitaballa geti hún ekki annað en þegið þennan merka titil.
„Ég ætla mér að standa undir honum sem felst aðallega í að skemmta mér og öðrum sem best og leiðbeina nýliðum í sveitaballamenningu um góða siði“.
Thelma Rut Hafliðadóttir segir langa hefð fyrir þessu fornfræga balli:
„Fyrir tíma nútíma samgangna gerðu Djúpmenn sér ferð í Ögur til að sletta úr klaufunum, oftast sjóleiðina og dönsuðu fram á morgun. Ballgestir fengu svo rabarbaragraut með rjóma áður en þeir fengu ferðaleyfi heim.
Við höldum í hefðina, og grautinn geri ég með uppskrift ömmu minnar Maju í Ögri og rjóminn kemur frá bændunum á Erpsstöðum í Dölum. Ögurballið er einn vinsælasti viðburður sumarsins á Vestfjörðum, verður vonandi svo um ókomin ár og er alltaf jafn gaman að taka þátt í“.
Myllumerki Ögurballsins er #ögurball, finna má viðburðinn á facebook og fylgjast með á Instagram @ogurball.
Mynd: aðsend
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Frétt4 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Markaðurinn12 klukkustundir síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Markaðurinn14 klukkustundir síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Frétt4 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Markaðurinn7 dagar síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann
-
Markaðurinn7 dagar síðanÍsey fagnar væntanlegum sólmyrkva með nýju skyrbragði



