Frétt
Allir básar uppseldir á STÓRELDHÚSIÐ 2017
Sýningin STÓRELDHÚSIÐ 2017 er uppseld og stefnir í stærstu og glæsilegustu sýningu til þessa. Öll helstu fyrirtæki á stórelhúsamarkaðnum munu kynna matvörur, tæki, búnað og annað er tilheyrir hótelum, mötuneytum og öðrum fyrirtækjum og stofnunum þar sem stóreldhús er að finna. Verður sýningin einstaklega fjölbreytt.
Sem fyrr verður sýningin í Laugardalshöllinni þar sem er afar gott sýningarhúsnæði og þægileg aðkoma. Allt frítt sem fyrr fyrir starfsfólk stóreldhúsana enda fagsýning sem er ekki opin almenningi.
Og nú er um að gera fyrir starfsfólk stóreldhúsa að setja fimmtudaginn 26. október og föstudaginn 27. október 2017 inn í dagskrána og merkja vel: STÓRELDHÚSIÐ 2017.
Mynd: skjáskot af google korti
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMyndasafn: Stóreldhúsið 2026 vel sótt í Laugardalshöll
-
Markaðurinn3 dagar síðanStóreldhússvið Danól verður Vistró
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanFimmtán vín hljóta Gyllta Glasið 2026
-
Keppni6 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Áhugavert2 dagar síðanÞrír sólarhringar í Nuuk
-
Keppni6 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanArnór Ingi og fjölskylda opna Laut í Norræna húsinu – sjáðu matseðilinn hér




