Freisting
Norræn máltíð á VOX: Gestakokkur René Redzepi
Á heimasíðu Vinogmatur.is er hægt að lesa lítinn pistil af upplifun á kvöldverði hjá gestakokkinum René Redzepi. Pistlahöfundurinn Arnar sem er annar eigandinn af Vin og Matur er greinilega mjög ánægður með matinn hjá René Redzepi og þjónustuna.
Hér að neðan ber að líta pistilinn frá Arnari:
René Redzepi, yfirmatreiðslumaður á NOMA í Kaupmannahöfn, var gestakokkur á VOX um helgina. René þessi hefur starfað hjá ekki lakari stöðum en El Bulli, French Laundry og Jardin des Sense.
Vínlistinn á NOMA er evrópskur og einhver sá flottasti sem ég hef séð.
Tónninn í matreiðslunni á Vox var norrænn; ölbrauð, rækjur, kartöflur, rúgur, söl, villigæs, skyr og þess háttar að ógleymdri öskunni! Öskuna framleiddu starfsmenn Vox með því að brenna hey.
Matseðillinn var fimm rétta og kostaði 7.950 kr. án vína, 13.450 kr. ef vínseðillinn var tekinn með. Fyrir utan réttina fimm voru boðnir 2 for-forréttir og einn for-eftirréttur, alls 8 réttir. Miðað við gæði var verðið sanngjarnt, á íslenskan mælikvarð a.m.k.
Svona leit 5 rétta matseðillinn út:
-
Hráar íslenskar rækjur með agúrkusafa og piparrótarsnjó (hvítvín: Riesling Steinmessel 2004 frá Brundlmayer sem mér fannst afbragðsgott, þurrt og glæsilegt)
-
Leturhumar og ostruemulsion, rúgur og söl (hvítvín: Sauvignon blanc 2006 frá Cloudy Bay sem angaði af kattahlandi og steinolíu og var afskaplega ljúft vín)
-
Litlar kartöflur og maltmjöður frá Fredriksberg (rauðvín: Aloxe Corton 1997 frá Louis Jadot sem ilmaði af hnakki og seltinni jörð og var áhugavert)
-
Íslensk villigæs með sultuðu selleríi, ösku og sykurbrúnuðum eplum (rauðvín: GSM 2002 frá Rosemount sem hafði skemmtilegan karamellu-ilm en á endanum fannst mér eikin bera það ofurliði)
-
Ölbrauð með skyrkrapís og freyðandi mjólk (styrkt sætvín: Maccabeu 2002 frá Mas Amiel sem hafði daufan ilm en skemmtilega áferð í munni og var bara fínt)
Án þess að fara of mikið í smáatriði var upplifunin mjög góð. Gúrkusósa var ferlega fersk og bragðgóð, ostruemulsion færði manni hafið á diskinn, mikil notkun á ýmis konar rúgi og malti var skemmtileg, askan var stórskemmtileg og ölbrauðið í eftirréttinum fékk mig til að hugsa um ömmu.
Sem sagt, mjög gott allt saman og þjónusta alveg til fyrirmyndar.
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Spennandi tækifæri
-
Frétt2 dagar síðan
Myllan innkallar heimilisbrauð
-
Markaðurinn4 dagar síðan
World Class barþjónakeppnin – Skráning 2025
-
Bocuse d´Or20 klukkustundir síðan
Myndir: Það styttist í herlegheitin – Sindri keppir fyrir Íslands hönd 27. janúar í Bocuse d´Or
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Bóndadagsgjöf ástríðukokksins
-
Pistlar1 dagur síðan
Gæðakerfi: Lykillinn að skilvirkum rekstri, minni sóun og ánægðari viðskiptavinir
-
Frétt1 dagur síðan
Menntun í matvælaiðnaði ekki metin til launa í leikskólum – Kallað eftir endurskoðun
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðan
Útlit hins sígilda íslenska Brennivíns hefur verið uppfært – Ákveðin framþróun í bragði Brennivínsins m.a. með tærari kúmenkeim en áður var