Vertu memm

Neminn

Ef þú lærir kokkinn, þá býð ég þér á Bocuse d´Or 2007

Birting:

þann

Jón Héðinn Kristinsson, matreiðslunemi
Jón Héðinn Kristinsson

Jón Héðinn Kristinsson er matreiðslunemi á veitingastaðnum Café Óperu. Jón eða Jonni eins og hann er kallaður í daglegu lífi, hefur verið duglegur við að senda hingað  á Nemendasíðuna ýmsa fróðleiks pistla.

Metnaðurinn er greinilega mikill í þessum unga matreiðslunema.

Haft var samband við Jonna og lagðar fyrir hann nokkrar spurningar:

(F=Freisting.is | J=Jonni)

F: Sæll vertu

J: Já, sæll

F: Hvað er maðurinn gamall?

J: 21 árs

F: Hvar byrjarðu læra fræðin þín?

J: Ég byrjaði að læra á Hótel Loftleiðum maí 2005 og var búinn að vera þar í dágóðan tíma, þegar mig langaði til að læra á A la carte veitingahúsi og mér bauðst samningur hér á Café Óperu, sem mér leist vel á og hér er ég kominn 🙂

F: Hvernig er að læra á Café Óperu?

J: Alveg svakalega fínt, ég læri mikið hér, alltaf eitthverja pælingar í gangi í eldhúsinu, spurður mikið um fagið í keyrslunni sem heldur manni við efnið og síðan er mjög góður vinnumórall.

F: Hver er meistari þinn?

J: Jú, það er hann Bjarni Sigurðsson matreiðslumeistari og ljósmyndari

F: Hvað eru margir matreiðslunemar á Óperu?

J: 3 matreiðslunemar og síðan er sá fjórði að útskrifast núna um miðjan desember næstkomandi, en það er hann Hinrik Carl

F: Ég heyrði að það hafi verið smá mistök hjá Fræðsluráðinu með samning þinn, hvað var það?

J: Hehehehe.. það var nú bara smá typo á samningnum sem síðan var leiðrétt, en ég var píparanemi í byrjun.

F: Þú ert á leið til Bocuse d´Or 2007. segðu frá því hvernig það stóð til?

J: Það var nú bara þannig að faðir minn Kristinn Einarsson er mikill Gourmet kall, en hann vinnur einmitt sem Sölu- og markaðsstjóri hjá heildsölufyrirtækinu Ekran sem hefur verið starfandi á matvælamarkaði í fjölda ára, sagði við mig í fyrra „Ef þú ert ennþá að læra kokkinn þegar kemur að Bocuse d´Or 2007, þá skal ég bjóða þér út“ og hann er auðvitað standa við það loforð 🙂  Annars kemur ekkert annað til greina en að fara „All the way“ í kokkinum og útskrifast með glæsibrag.

Freisting.is vill þakka Jonna fyrir viðtalið og óskar honum góðra velgengis í námi.

 

Ljósmynd tók Bjarni Sigurðsson matreiðslumeistari/Freisting.is

[email protected]

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss
Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið