Frétt
Eftirminnilegasta máltíðin: Heimsóknir mínar til Gunna Kalla á Dill
Á næstu vikum ætlar Veitingageirinn.is að birta upplifun fagmanna á eftirminnilegustu máltíðunum þeirra.
Fyrstur í röðinni er Ágúst Már Garðarsson, en Ágúst er 37 ára gamall og starfar sem yfirmatreiðslumaður hjá Icelandair. Ágúst lærði fræðin sín á Hótel KEA á árunum 1995 til 1999 og hefur starfað á Lækjarbrekku, Restaurant Amalie Molde, Brasserie Sommelier, SaTT, Silfur, HaPP svo eitthvað sé nefnt.
Hver er þín eftirminnilegasta máltíð?
Síðasta heimsókn á veitingastað er ávallt efst í huga, nú var það Coq au Vin í Orlando í síðustu viku sem er í eigu Raymond Pitz margverðlaunaðan Chef í USA.
Virkilega næs, gamaldags franskur ressi með klassík, og svakalegt Souffle í eftirrétt sem þurfti að panta fyrir matinn. Skemmtileg upplifun. Þar fékk ég líka brjálað Foie Gras terrine og Brioche.
Annars hafa heimsóknir mínar til Gunna Kalla á Dill Restaurant verið mest eftirminnilegustu hér heima og þá sérstaklega grísasíða og humar sem ég fékk á Food and Fun 2010. Maturinn á Vox er líka alltaf frábær þegar ég fer þangað.
Mynd: aðsend
Twitter og Instagram: #veitingageirinn
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn1 dagur síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Markaðurinn6 dagar síðanStökkar franskar sem þú getur treyst á
-
Frétt5 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt
-
Frétt4 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Frétt5 dagar síðanHalla Sif meðal 100 kvenhetja landbúnaðarins
-
Markaðurinn2 dagar síðanNýtt frá Lavazza | Qualità Oro Dark Roast
-
Keppni9 klukkustundir síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni



