Kristinn Frímann Jakobsson
Blómstrandi matarmenning á Local Food hátíðinni á Akureyri
Local Food sýningin verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn 17. október næstkomandi. Local food sýningin verður haldin annað hvert ár og tekur við af sýningunni Matur-Inn, en þá sýningu sóttu um 13-15 þúsund gestir þegar hún var haldin síðast árið 2013.
Local Food sýningin endurspeglar styrk Norðurlands sem stærsta matvælaframleiðslusvæðis landsins og er því kjörinn kynningarvettvangur fyrirtækja og einstaklinga í geiranum til að vekja athygli á framleiðslu, matarmenningu, veitingastarfsemi, matartengdri ferðaþjónustu og verslun þessu tengd.
Sýningin er fyrst og fremst sölusýning! Aðgangur að sýningunni verður ókeypis og er opnunartíminn frá klukkan 12-18.
Á Local Food sýningunni er ekki einungis hægt að smakka og kynna sér það besta í norðlenskri matvælaframleiðslu, þar eru einnig kynningarbásar frá veitingaaðilum og boðið verður upp á fyrirlestra um matarmenningu. Gestum sýningarinnar gefst kostur á að fylgjast með Masterchef einvígi og keppni í svokallaðri Mistery Basket þar sem matreiðslumeistarar keppa sína á milli.
Matreiðslunema keppa um besta eftirréttinn, kaffiþjónar keppa í besta áfenga, óáfenga og fallegasta kaffidrykknum, barþjónar keppa sín á milli í kokteilakeppni og síðast en ekki síst gefst almenningi kostur á að taka þátt í keppni um bestu samlokuna.
Klúbbur matreiðslumeistara á norðurlandi hefur yfirumsjón með keppnunum.
Við hvetjum alla til að kíkja við og skoða og smakka á því sem norðurland hefur uppá að bjóða og jafnvel gera frábær kaup í leiðinni.
Veitingageirinn.is á staðnum
Undirritaður mun vera á svæðinu fyrir veitingageirann , mynda og skrifa fréttir frá hátíðinni líkt og gert hefur verið í gegnum árin.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNýr rekstraraðili tekur við Pakkhúsinu í Ólafsvík
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanÞráinn Freyr: „Það er alltaf spennandi að skapa eitthvað nýtt“
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanVerðlaunavín Gyllta Glasið 2026 – Fyrri partur
-
Markaðurinn2 dagar síðanStálborð á afslætti – fyrstur kemur, fyrstur fær
-
Starfsmannavelta22 klukkustundir síðanLokar dyrunum eftir krefjandi rekstur
-
Markaðurinn3 dagar síðanAirfryer rauðspretta á brioche sem svíkur engan
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMet slegið í London: Risastór tiramisu mældist yfir 440 metrar – Vídeó




