Ágúst Valves Jóhannesson
Frida Ronge – Smurstöðin – Veitingarýni – F&F
Á neðstu hæðinni í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu má finna veitingastaðinn Smurstöðina. Staðurinn er nýlega opnaður og því er þetta í fyrsta sinn sem staðurinn býður upp á Food and fun matseðil.
Þetta árið er þemað Japanskt, en gestakokkurinn er Frida Ronge sem á veitingastað í Gautaborg í Svíþjóð, og ber nafnið vRå. Fyrst um sinn bauð hún upp á hráfæðismat á veitingastaðnum sínum en færði sig fljótlega yfir í Japanska matargerð en hún er sjálflærð í þeim efnum.
Hún hefur notast við fersk hráefni, sem hún hefur fengið í nálægð við sitt svæði og hefur því blandað þeirri Japönsku matargerð við Skandinavísk hráefni.
Fullt af bragði og laxaroðið gaf mikið.
Góð hlutföll og hreint bragð.
![Frida Ronge - Smurstöðin – Food & Fun 2015](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2015/02/Soba-Þriðji-réttur-Smurstöðin-1024x768.jpg)
Soba
Soba núðlur og hörpuskel í hörpuskels-dashi með wakame, sýrðum shiitaki sveppum og edamame baunum.
Hörpuskelin létt og góð, hörpuskels dashi var bragðmikið og gott en mögulega fullmikið af núðlum.
![Frida Ronge - Smurstöðin – Food & Fun 2015](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2015/02/Maki-og-Gunkan-maki-fjórði-og-fimmti-réttur-Smurstöðin-1024x712.jpg)
Maki
Saltfiskur og tamago með dilli ásamt graslauk og þorskroði.
Gunkan maki
Þorsklifur í panko toppað með ferskri agúrku.
Maki
Alveg svakalega gott og gaman að sjá japanska matreiðslu smellpassa með einhverju eins Íslensku og saltfiskurinn er. Mjög vel gert tamago.
Gunkan maki
Þorsklifurinn stökk og bragðgóð, og gúrkan vafin utan um grjónin undir lifrinni.
Minnir óneitanlega á mexíkóskt taco en er í raun sérjapanskt fyrirbrigði. Kinnin brennheit, stökk og þar var allt eins og það átti að vera. Sirachi sósan var bragðsterk og tók vel í. Allt að virka þarna.
Mikið bragð í gangi þarna og passaði allt saman.
Áferðin á ísnum var tandurhrein, skemmtilegt og óvænt að finna soyabragð af ís. Plómurnar og karamellukurlið voru mikilvæg með.
Við þökkum Smurstöðinni fyrir afar góða máltíð og þjónustu sem og gestakokknum Fridu Ronge sem er greinilega að gera gott starf í sinni japönsku matreiðslu.
![](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2018/02/veitingageirinn.png)
-
Keppni5 dagar síðan
Munið skilafrestinn 14. febrúar – Graham’s Blend Series Kokteil keppni 2025
-
Keppni2 dagar síðan
Ísland vekur athygli með framúrskarandi vegan réttum á Ítalíu
-
Keppni18 klukkustundir síðan
Hinrik og Andrés skila glæsilegum réttum í Global Chefs Challenge – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Frönsk matargerð í hávegum höfð: Michelin-meistari færir Midland Grand Dining Room á næsta stig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðan
Eldhús framtíðarinnar: Snjallbúnaður sem sparar tíma, vinnu og orku – Myndbönd
-
Keppni3 dagar síðan
Global Chefs Challenge fer fram á Ítalíu
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Vatnsdeigsbolla með Nutella-kremi og kransabita
-
Keppni4 dagar síðan
Íslenskir barþjónar í sviðsljósinu: Barþjónakeppnin World Class er hafin á ný