Vín, drykkir og keppni
BrewDog lokar 38 krám eftir greiðslustöðvun
Skoska handverksbrugghúsið BrewDog hefur lokað 38 krám með skömmum fyrirvara í kjölfar þess að félagið fór í greiðslustöðvun. Þar með dregur verulega úr umsvifum fyrirtækisins á heimamarkaði, einkum í Englandi og Skotlandi.
Bandaríska drykkjar- og lyfjafyrirtækið Tilray Brands hefur keypt breska framleiðslustarfsemi BrewDog í Ellon í Aberdeenshire, ásamt vörumerkjum félagsins og ellefu krám í Bretlandi og á Írlandi. Kaupverðið nemur 33 milljónum punda, jafnvirði um 5,7 milljarða íslenskra króna miðað við núverandi gengi, að því er fram kemur á fréttavef BBC. Með samningnum eru 733 störf tryggð, en á móti missa 484 starfsmenn vinnuna.
Sameiginlegir skiptastjórar frá AlixPartners segja að ekkert tilboð hafi borist sem tryggði áframhaldandi rekstur félagsins í óbreyttri mynd. Engar greiðslur munu renna til hluthafa, þar á meðal þeirra sem tóku þátt í hlutafjáraflinu Equity for Punks. Áfram verður þó rekstur 18 sérleyfiskráa BrewDog utan beinnar eigu félagsins.
BrewDog var stofnað árið 2007 af James Watt og Martin Dickie og varð á skömmum tíma eitt þekktasta nafn í heimi handverksbjórs. Undanfarin ár hefur þó hallað undan fæti. Fyrirtækið tapaði 37 milljónum punda fyrir skatta árið 2024 og var það fimmta tapárið í röð.
Í júlí lokaði BrewDog jafnframt tíu krám víðs vegar um Bretland, þar á meðal flaggskipi sínu í Aberdeen.
Á Íslandi lokaði BrewDog 25. október á síðasta ári. Barinn var til húsa við Hverfisgötu í miðborg Reykjavík þar sem boðið var upp á skoskan handverksbjór. Reksturinn stóð í sjö ár og markaði ákveðinn kafla í sögu alþjóðlegra bjórkeðja hér á landi.
Sjá einnig: BrewDog kveður eftir sjö ár með stæl
Eftirfarandi staðir BrewDog hafa verið lokaðir
Í Englandi er um að ræða bari í Basingstoke, Bath, Bournemouth, Bristol á Baldwin Street og við Harbourside, Cambridge, Cardiff, Carlisle, Cheltenham og Exeter. Í London loka staðir í Soho, á Camden Road, Chancery Lane, Clerkenwell, Ealing, Hammersmith, Seething Lane, við Tower Bridge og í Wandsworth. Þá hafa barir í Liverpool, Manchester, þar á meðal DogHouse Manchester og Manchester Outpost, Milton Keynes, Newcastle, Norwich, Nottingham, Plymouth, Reading og Southampton verið lokaðir.
Í Skotlandi er lokað í Aberdeen, bæði við Castlegate og í Union Square, í Edinburgh við Cowgate, í Glasgow í Merchant City og á Argyle Street, auk staða í Inverurie, Perth, St Andrews og Stirling.
Eftirtaldir staðir hafa hins vegar verið seldir til Tilray Brands og halda áfram rekstri undir nýju eignarhaldi.
Í Englandi eru það Birmingham, London í Canary Wharf, Paddington, Seven Dials, Tower Hill og Waterloo, auk staðarins á Peter Street í Manchester.
Í Skotlandi eru það DogTap í Ellon og DogHouse Edinburgh ásamt staðnum á Lothian Road í Edinburgh.
Á Írlandi er það barinn í Dublin sem fellur undir kaupin.
Mynd: brewdog.com
-
Keppni6 dagar síðanBrons hjá Íslandi í bæði framreiðslu og matreiðslu
-
Íslandsmót barþjóna4 dagar síðanReykjavík Cocktail Week lauk með úrslitum og hátíðarkvöldverði í Gamla Bíó – Myndaveisla
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanMyndir frá formlegri opnun á nýjum stað hjá Mat og drykk
-
Frétt3 dagar síðanAftur greinist salmonella í nautahakki
-
Markaðurinn3 dagar síðanNý Heinz ChefsBottle hönnuð af kokkum fyrir kokka
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanNý mathöll, fleiri verslanir og vinsælir viðburðir auka aðsókn í Smáralind
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanDiskósúpa og fræðsla í forgrunni í átaki gegn matarsóun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanTveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi




