Freisting
Skyr.is í útrás til Bretlands

Með stofnun Nýlands ehf. er MS farið á fullt í að markaðsetja skyr inn á Es markaðinn með áherslu á Bretland í byrjun, og hafa tilraunarsendingar sem farið í heilsuverslanir í London gefið góða svörun þannig að með haustinu verður skyrið fáanlegt í smásöluverslunum víðvegar um landið.
Þetta er gerlegt þar sem Íslendingar eiga frjálsan tollkvóta inn á ES svæðið og gerir það að verkum að samlögin geta borgað til bændanna hærra verð fyrir umframmjólkina .
Ráðgera menn að flytja út 200 tonn á ári í byrjun, og auka svo smá saman, en þess skal getið að úr þeirri mjólk sem framleidd er umfram þarfir markaðsins í dag er hægt að framleiða 2000 tonn af skyri.
Er þetta framtak MS manna lofsvert og vonandi sjáum við aukinn útflutning á íslenskum matvælum.
Heimildir MBl,is og skyr.is
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanSkráning hafin í Negroni vikuna 2026
-
Keppni2 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Frétt7 dagar síðanWilhelm Wessman fallinn frá
-
Markaðurinn7 dagar síðanSólmyrkvapylsur frá SS í takmörkuðu upplagi
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFærri brugghús loka í Bretlandi
-
Frétt5 dagar síðanVarað við skordýrum í dilli
-
Markaðurinn6 dagar síðanUmhverfisvottuð gæði fyrir hótel og gististaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanIðan fagnar 20 ára afmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum


