Markaðurinn
Hágæða borðbúnaður fyrir veitingarekstur frá Churchill

Frá árinu 1795 hefur Churchill borðbúnaður verið framleiddur í Stoke-on-Trent í Englandi. Vörumerkið er þekkt fyrir einstök gæði og státar af yfir tveggja alda sérfræðiþekkingu þar sem hefðbundinni handverkskunnáttu er blandað saman við nýstárlega hönnun. Churchill borðbúnaður er endingargóður og stílhreinn og hentar sérstaklega vel fagfólki í veitingageiranum.
Churchill leggur mikið upp úr gæðum og sjálfbærni sem hefur gert fyrirtækið að leiðandi afli í borðbúnaðarframleiðslu á heimsvísu.
Hjá Ásbirni fæst heilmikið úrval af glæsilegum Churchiill borðbúnaði og hnífapörum í mörgum gerðum, stærðum, áferðum og litum sem lyfta réttunum á matseðli upp á næsta stig.
Churchill vörurnar eru fáanlegar í sérpöntun í gegnum söludeild Ásbjarnar, hafðu samband í síma 414-1100 eða á [email protected] eða kíktu í heimsókn til okkar í sýningarrýmið á Köllunarklettsvegi 6 þar sem þú getur handleikið og skoðað þennan vandaða borðbúnað.
-
Markaðurinn5 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni4 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Keppni6 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni6 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn3 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt2 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð





