Markaðurinn
Matreiðslumenn landsins: Prufaðu fiskrétt Gumma Kíró í mötuneytinu – Nýr fiskréttur vakti lukku

Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi Kíró, með hinn nýja og ljúffenga fiskrétt Bon appétit.
Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi Kíró, heimsótti fiskverslunina Hafið í Hlíðasmára á dögunum og kynnti nýjan fiskrétt sem nefnist Bon appétit, sem hann hannaði í samstarfi við Hafið. Rétturinn samanstendur af þorskhnakka í hvítlauks- og kryddjurtamarineringu, borinn fram með sætkartöflu, aprikósupestó og sriracha-smjöri.
Gestir og gangandi fengu tækifæri til að smakka réttinn og voru viðtökurnar afar góðar. Stemningin í versluninni var lífleg og ánægjuleg, og starfsfólkið þakkar öllum sem lögðu leið sína við kærlega fyrir hlýjar móttökur og ánægjulega stund.
Að sögn Bjarka Gunnarssonar, verslunarstjóra í Hlíðasmára, í samtali við Veitingageirann.is, hefur rétturinn fengið einstaklega góðar undirtektir. Bjarki, sem er menntaður bæði sem matreiðslumaður og kjötiðnaðarmaður, segir að mikilvægast sé að bjóða upp á gæðaríkar og fjölbreyttar sjávarafurðir sem vekja áhuga viðskiptavina.
Gætir þú útbúið þennan rétt fyrir mötuneyti, ef matreiðslumenn myndu panta hann hjá þér?
„Það fer auðvitað eftir magninu,“ segir Bjarki. „Það væri ekki raunhæft að útbúa 1000 skammta í einu, en fyrir 200–300 skammta væri það vel framkvæmanlegt.“
Nánari upplýsingar á: www.hafid.is
Meðfylgjandi myndir tók Pétur Örn Pétursson.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanNýr veitingastaður opnar í Mosfellsbæ
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanSjaldgæft vínsafn Stalíns fer á uppboð í Georgíu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanSteinunn og Sæþór fagna 25 ára afmæli Narfeyrarstofu
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanTrump í vínstríði við dyggan stuðningsmann
-
Keppni4 klukkustundir síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Frétt2 dagar síðanMatvælasjóður hefur veitt 3,7 milljarða í styrki frá 2020
-
Markaðurinn12 klukkustundir síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir







