Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Nýir rekstraraðilar á veitingastaðnum Rauða húsið

Birting:

þann

Rauða húsið á Eyrarbakka

Rauða húsið á Eyrarbakka

Nýir rekstraraðilar hafa tekið við í hinu rómaða Rauða húsi á Eyrarbakka, en það eru þeir Stefán Kristjánsson og Stefán Ólafsson.  Nýr mat-, og vínseðill, áhersla á ferskt hráefni úr matarkistu Suðurlands.

Stefán Kristjánsson er 51 árs matreiðslumaður, en hann lærði fræðin sín á Hótel Esju á árunum 1979 til 1983 ásamt því að læra bakarameistarann árið 1988 í Smárabakaríi og Kondidorí í Danmörku árið 1991.  Stefán hefur unnið til margra viðurkenninga og verðlauna á starfsferlinum sínum og er meðlimur í Klúbbi Matreiðslumeistara.  Stefán hefur Starfað óslitið við þessa iðn frá því að námið hófst 1979 bæði erlendis og heima. Stefán hefur verið mikið í eigin rekstri í bland við störf hjá öðrum. Síðast var Stefán vaktstjóri á Hótel Rangá.

Stefán Ólafsson er 40 ára barþjónn og lærði þau fræði í Hannover í Þýskalandi árið 1997.  Vann til margra verðlauna bæði á sviði kokkteil gerðar og sem viskí sérfræðingur.  Stefán vann við fagið í Þýskalandi til ársins 2005 þegar hann hélt aftur til Íslands og fór að vinna á Radisson SAS 1919 hóteli,  Hilton Nordica Reykjavík og sem yfirþjónn á Hótel Rangá.  Stefán er meðlimur í Barþjónasamtökum Íslands sem og Barþjónasamtökum Þýskalands.

Við gerðum nokkrar breytingar á matseðli og á vínseðli. Var úrvalið aukið til muna á vínum og matargerðinni lyft á hærra plan.  Við erum með gott úrvals sjávarrétti, Lamba-, nauta og hrossa steikur og gott úrval forrétta og eftirrétta.

… sagði Stefán Ólafsson í samtali við veitingageirinn.is, aðspurður um breytingar á mat-, og vínseðli.

Rauða Húsið er fallegt sögufrægt hús á Eyrabakka þar sem boðið er upp á la carte sem og hópa seðla. Húsið rúmar allt að 280 manns og er hentugt fyrir árshátíðir, hátíðis-, og tækifæris veislur.

Við ætlum í haust að bjóða hópum upp á viskí kynningar og verður í boði að fá sérvalinn matseðil með kynningunni.  Við höfum verið með bjórkynningar fyrir Ölfusholt og ætlum að auka á það og bjóða einnig upp á sérstakan matseðil í takt við kynningarnar fyrir hópa.  Svo er fyrirhugað að hafa villibráðar-, og jólahlaðborð með íslenskum og dönskum sérréttum.

… sagði Stefán að lokum.

 

Mynd: af heimasíðu Rauða hússins

/Smári

Taggaðu okkur á Instagram: #veitingageirinn og myndirnar birtast sjálfkrafa á forsíðunni.

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið