Markaðurinn
Instagram er góð leið til að ná til íslenskra neytenda | Instagram er næst vinsælasti samfélagsmiðill Íslendinga
Kelloggs fyrirtækið góðkunna greip um helgina til óvenjulegs ráðs til að kynna breytingu sem búið er að gera á uppskriftinni að Special K morgunkorninu. Fyrirtækið nýtti sér mátt samfélagsmiðlanna og opnaði sérstaka pop-up verslun, Instashop, í Kringlunni þar sem gestir og gangandi gátu greitt fyrir morgunkorn með Instagram-mynd.
Þetta er í fyrsta sinn sem þessi óvenjulega leið er farin við markaðssetningu hér á landi, en Kelloggs stóð fyrir samskonar viðburði í Svíþjóð í sumar.
Instashop virkaði þannig að fólk smellti af sér mynd þar sem það hélt á stórum kassa af Special K og birti hana á Instagram með merkingunni #nyttspecialk. Í staðinn fékk það kassa af morgunkorninu. Uppátækið mæltist vel fyrir og fjölmargir komu við í Instabúðinni.
Special K á marga aðdáendur hér á landi, en það er næstvinsælasta morgunkornið á borðum landsmanna. Það var því vel við hæfi að kynna breytinguna á Instagram, en könnun sem gerð var af vefmarkaðsstofunni Hálendið fyrir Kelloggs sýndi að Instagram er næstvinsælasti samfélagsmiðillinn á Íslandi, að því er fram kemur í fréttailkynningu.
Helstu niðurstöður könnunar um samfélagsmiðlanotkun Íslendinga
Í nýrri könnun sem vefmarkaðsstofan Hálendið gerði fyrir matvælaframleiðandann Kelloggs kemur í ljós að Instagram er næst vinsælasti samfélagsmiðill Íslendinga. Hátt í 400 manns svöruðu könnuninni.
Facebook trónir sem fyrr á toppnum. Twitter, samskiptamiðill sem byggir á stuttum textaskilaboðum og hefur náð miklum vinsældum víða um heim, virðist ekki hafa slegið jafn duglega í gegn hér á landi.
Samfélagsmiðlar sem gera notendum kleift að deila ljósmyndum og myndböndum virðast höfða vel til Íslendinga.
- 39% aðspurðra í könnuninni sögðust opna Instagram að minnsta kosta einu sinni á dag.
- En á móti voru aðeins 20% sem opna Twitter
- og aðeins 9% sem opna Linkedin.
- Í könnuninni kemur einnig fram að Snapchat nýtur mjög vaxandi vinsælda. (28% aðspurðra var með forritið í símanum sínum)
Í könnuninni var einnig spurt um viðhorf fólks til ýmissa samskiptamiðla
- 81% sögðu að Facebook og Instagram væri góð leið til að miðla eigin lífi.
- 82% sögðu að notkun þessara tveggja samskiptamiðla skapi aukna nánd í samskiptum við vini og ættingja.
- 77% sögðu þá vera góða leið til að mynda ný tengsl
- 94% sögðu þá nýtast við að viðhalda tengslum.
- 35% segja þessa tvo samskiptamiðla vera hentugt hjálpartæki í makaleit.
Myndir: Aðsendar
Taggaðu okkur á Instagram: #veitingageirinn og myndirnar birtast sjálfkrafa á forsíðunni.
-
Keppni6 dagar síðanMyndir: Negroni vikan málaði bæinn rauðan
-
Markaðurinn3 dagar síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHákon Bragi seldi hlut sinn í Fæby og tekur við nýju starfi hjá ISS
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanMyndasafn: Glæsilegt sælkerakvöld með Bocuse d’Or kokkum Íslands
-
Markaðurinn5 dagar síðanViltu öðlast ofurkrafta – Ertu að nýta gervigreindina í daglegu starfi?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Markaðurinn4 dagar síðanBrauð mánaðarins með stökkri og fallegri áferð
-
Markaðurinn2 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan





