Viðtöl, örfréttir & frumraun
Viðvík opnar með nýjum matseðli
Veitingastaðurinn Viðvík, sem staðsettur er á Snæfellsnesi við þjóðveginn á leið frá Hellissandi, hefur opnað að nýju. Viðvík lagðist í dvala 29. ágúst í fyrra eftir frábært sumartímabil.
Rekstraraðilar og eigendur eru Gils Þorri Sigurðsson og Aníta Rut Aðalbjargardóttir. Aníta Rut er viðskiptafræðingur og Gils Þorri er matreiðslumaður að mennt, en hann lauk sveinsprófi árið 2014 frá Gallery restaurant/Hótel Holt. Gils hefur til að mynda tekið þátt í keppninni Eftirréttur ársins 2014.
Viðvík tekur um 40 manns í sæti.
Viðvík er í nýuppgerðu húsi sem var byggt árið 1942 og býður staðurinn upp á frábært útsýni til Snæfellsjökuls, yfir Breiðafjörð og Krossavíkina.
Myndir: facebook / Viðvík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Markaðurinn2 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun15 klukkustundir síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Frétt7 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Markaðurinn2 dagar síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði
-
Keppni18 klukkustundir síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna












