Frétt
Varað við svikamyllu
Neytendasamtökin varar við svikamyllu en nokkrir íslenskir neytendur hafi lent í óskemmtilegri reynslu þegar þeir hafa pantað hótelherbergi í gegnum tyrkneska fyrirtækið www.bookinhotels.com en þetta kemur meðal annars fram á vef samtakana Ns.is.
Fólk hefur pantað herbergi í gegnum þessa síðu og greitt fyrir með kreditkorti. Við komuna á hótelið finnst hins vegar engin bókun, og í kjölfarið þarf fólk að útvega sér aðra gistingu. Mjög erfitt virðist vera að kvarta við fyrirtækið og neytendur hafa ekki fengið endurgreitt. Í öðrum tilvikum hefur fólk, örfáum dögum fyrir áætlaða komu, fengið tölvupóst frá bookinhotels um að því miður hafi þurft að aflýsa bókuninni en endurgreiðsla muni berast innan skamms. Endurgreiðslan berst svo aldrei og kvartanir bera lítinn árangur.
Svo virðist því vera að um svikamyllu sé að ræða, en auk þess að tapa peningum verður fólk fyrir talsverðum töfum og vandræðum, og slíku vill enginn lenda í meðan verið er í fríi.
Það getur verið mjög þægilegt og hagkvæmt að panta vörur, flug, hótel og fleira í gegnum internetið. Hins vegar er það afar góð regla að ,,gúggla netsíðu áður en viðskipti fara fram. Netverjar eru nefnilega duglegir að kvarta sé á þeim brotið og ef t.a.m. er leitað að skrifum um bookinhotels.com kemur í ljós að fjölmargir hafa tapað fé á viðskiptunum, sjá t.d. hér og hér. Neytendasamtökin vilja því vara við þessari síðu og hvetja neytendur til að sýna fulla varkárni í viðskiptum á netinu og leita sér upplýsinga. Vitaskuld eru flestar síður reknar af heiðarleika en svartir sauðir leynast inn á milli.
Fram kemur á vef Neytendasamtakana að minna á rétt fólks til að fara fram á endurgreiðslu ef greitt er með kreditkorti.
-
Frétt2 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanBoðið í ferð fyrir fagfólk í veitingageiranum
-
Keppni6 dagar síðanNegroni hlaupið lífgar upp á Austurvöll
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Markaðurinn7 dagar síðanNathan kynnir nýja virkni sem flýtir fyrir daglegum innkaupum
-
Keppni7 dagar síðanManuel Schembri vann brons fyrir Íslands hönd



