Vertu memm

KM

Uss, uss The Canadien’s is coming to Town

Birting:

þann

Það var vaknað snemma, tekinn smá skver á baðinu og rúllað niður í brekkara, flott hlaðborð og mikið úrval og ekki staðist að smakka aðeins á því.

Kl 09;00 mætti rúta fyrir utan hótelið og flutti okkur í gamlan matreiðsluskóla sem þeir eru hættir að nota og fengum við aðstöðu í einu eldhúsinu til að undirbúa, því ungkokkarnir áttu að afgreiða fyrirfram ákveðin matseðil í tjaldi niður við höfn undir nafninu Flirting with Seafood.  Bæði miðvikudag og fimmtudag það skyldi afgreitt kl 12;00 kl 15;00 og kl 18;00, undirbúningurinn gekk með ágætum og var hreinasta unun að sjá hvað þau náðu vel saman og þau sem komu ný inn í hópinn virtust hafa verið þarna allann tímann.

Í hádeginu kom Ragnhild og Nína með samlokur og ávaxtasafa sem allir nærðu sig á og svo var haldið áfram en það var voða loftleysi og hiti inni í eldhúsinu, okkur til aðstoðar var Gunnar Hvarnes yfirreddari sem er í norska landsliðinu í frímerkjasöfnun æ nei í matreiðslu.

 

Kl 17;00 en þá kom rútan og sótti okkur og farið með okkur niður að sjó, svona þeirra Nauthólsvík og þar voru áðurnefndar dömur klárar með kvöldverðinn sem samanstóð af nýveiddum og soðnum rækjum, súrdeigsbrauði, salati og mayonnaise og svo fékk hver sér á disk og settist út í guðs grænu náttúrunna og byrjaði að pilla rækjur því þær voru jú enn í skelinni.

Ég verð nú að viðurkenna að ég er alveg til í að borga aðeins meira og fá matinn minn tilbúinn á disk til átu.

Kl 18;30 kom rútan og sótti okkur og fóru nokkrir upp í skóla og ætluðu að undirbúa meira en öldungadeildin fór upp á hótel og ég þar á meðal, og þegar þar var komið áttaði ég mig á því að þessar helvítis rækjur höfðu bara ert upp í manni hungrið þannig að ég smellti mér inni í ressann og pantaði mér sjávarréttarsúpu og þvílík súpa, hún var himnensk að borða og fór maður saddur, sæll og ánægður upp á herbergi til að kúra eins og litlu börnin.

/Sverrir

Fleira tengt efni:

20.7.2008
Nordic/Canada culinary Junior Exchange 2008

 

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið