Frétt
Undanþágur til veitingamanna 23. desember
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita veitingastöðum undanþágu frá fjöldatakmörkun nýrrar reglugerðar um takmarkanir á samkomum þann 23. desember. Veitingastöðum verður því heimilt að taka á móti 50 gestum í rými þann 23. desember í stað 20 líkt og kveðið er á um í reglugerð.
Að fjöldatakmörkunum slepptum verður skylt að viðhafa allar þær sóttvarnaráðstafanir sem kveðið er á um í reglugerðinni. Veitingastöðum ber því að loka á þeim tíma sem kveðið er á um í reglugerðinni, þ.e. kl. 21.00.
Þetta er gert til að gæta meðalhófs í ljósi þess hve skammur fyrirvari er á gildistöku reglugerðar um hertar sóttvarnaaðgerðir. Rekstraraðilar eru hvattir til þess að gæta áfram ýtrustu sóttvarnaráðstafana, svo sem með greiðu aðgengi að handspritti, tryggja grímunotkun og gæta að 1 metra nálægðarmörkunum milli ótengdra aðila.
Sjá einnig:
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanMyndir: Glæsilegt kampavínsboð á Apótekinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanÞráinn Freyr tók á móti matreiðslumeisturum
-
Markaðurinn6 dagar síðanMyndir: Vel heppnað bakaranámskeið á vegum Bakels
-
Markaðurinn6 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Kunsang Tsering Tamang með spennandi námskeið í Ramen-gerð hjá Iðunni fræðslusetri
-
Markaðurinn6 dagar síðanSvane – Hreinlæti með umhverfið í huga
-
Keppni3 dagar síðanGull hjá Kokkalandsliðinu í Lúxemborg
-
Frétt5 dagar síðanMyglueitur í hveiti: neytendur hvattir til að kanna birgðir sínar
-
Markaðurinn5 dagar síðanSvartir dagar hjá Progastro



