Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Taco Bell frá Varnarliðinu til Hafnarfjarðar
Hafnfirðingar verða fyrstir í heiminum til þess að bragða á Taco Bell utan Bandaríkjanna eða bandarísks varnarsvæðis þegar skyndibitakeðjan hefur rekstur í húsi KFC í Hafnarfirði. Mikil eftirvænting og spenna ríkir eftir opnun staðarins meðal aðstandenda segir Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri KFC á Íslandi.
KFC eða Kentucky Fried Chicken hefur verið starfandi á Íslandi í 26 ár og lengst af í Hjallahrauni 15 í Hafnarfirði. Nú stendur til að tveir skyndibitastaðir opni í húsnæðinu að Hjallahrauni á tveimur hæðum þar sem notast verður við kjallara KFC í húsnæðinu fyrir annan staðinn. Þetta er gert að bandarískri forskrift þar sem það færist nú í aukana hjá Bandaríkjamönnum að vera með svo kallaða 2 in 1 staði eða tvo matsölustaði í einu húsnæði og dæmi eru um að það séu jafnvel þrír matsölustaðir í einu húsnæði, sagði Kristín í samtali við Víkurfréttir.
Taco Bell var staðsett í nokkra mánuði á Keflavíkurflugvelli en staðnum var lokað í ljósi brotthvarfs Varnarliðsins. Skyndibitakeðjuna er eingöngu að finna í Bandaríkjunum eða á varnarstöðvum Bandaríkjanna víðs vegar um heiminn. Nú verður hins vegar breyting á og mun Taco Bell opna í húsi KFC í Hafnarfirði um miðjan nóvember á þessu ári. Á meðan breytingum stendur mun KFC í Hafnarfirði loka í um tvær vikur, sagði Kristín sem verið hefur viðriðin rekstur KFC allt frá stofnun fyrirtækisins.
Taco Bell var stofnað í Bandaríkjunum um miðbik síðustu aldar af Glen Bell en fyrirtækið er í eigu YUM sem rekur m.a. staði á borð við KFC, Pizza Hut, Long John Silver og American Burger og skipta staðirnir þúsundum.
Hafnfirðingar fá því fyrstir allra Taco Bell utan Bandaríkjanna og ef vel tekst til gæti svo farið að fleiri Taco Bell staðir myndu rísa á Íslandi.
Heimasíða Taco bell: www.tacobell.com
Greint frá á vikurfrettir.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Frétt4 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn6 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Frétt5 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum
-
Keppni3 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanVinsælustu pizzaáleggin á Íslandi





