Vertu memm

Freisting

Styrktartónleikar í Háskólabíó

Birting:

þann


Alexandra ásamt föður sínum og Ronju systur sinni

Ólafur Páll Birgisson og Kolbrún Björnsdóttir eru ung hjón sem búa í Roskilde í Danmörku þar sem þau hafa stundað nám og eiga þau 10 ára stúlku, Alexöndru Líf. Alexandra Líf berst við krabbamein sem kallast MDS og þarf að fara í beinmergsskipti núna í ágúst.

Árið 2004 greindist Alexandra Líf með hvítblæði þá 5 ára gömul. Þá tók við langt og erfitt ferli af lyfjameðferðum.
Ekki nóg með það að Óli og Kolla þurftu að berjast með dóttur sinni í stríði við krabbameinið, þá dundi annað áfall yfir þann 4. júní árið 2005 þegar Kristófer Birgir 3 ára sonur þeirra drukknaði í slysi. Þá var staðan þeirra þannig að þau voru að berjast með Alexöndru við hvítblæðið sem og að syrgja látinn son sinn, auk þess áttu þau Ronju sem þá var tæplega 2 ára.

Í ágúst árið 2006 eignuðust þau svo stúlku sem heitir Kristjana Elín og í oktbóber árið 2007 dreng sem heitir Benjamín Arnar

Þeir sem ekki komast á tónleikana eða langar að styrkja þetta málefni enn frekar geta lagt beint inn á bankareikninginn.

Reikningsnr:
0537 – 14 – 403800 kt 160663 – 2949
Ólöf Ása Þorbergsdóttir er skráð fyrir reikningnum.

Nú árið 2009 eða 5 árum seinna kom í ljós að Alexandra er ekki lengur með hvítblæði.
Þrátt fyrir þau tíðindi að hvítblæðið væri læknað var hún áfram mjög veik og þess vegna í stöðugum rannsóknum sem nú hafa leitt í ljós að hún er komin með krabbamein sem kallast MDS sem eingöngu gamalt fólk fær.

Núna í ágúst fer hún í beinmergsskipti sem kallar á það að báðir foreldrar hennar þurfa að hætta að vinna því það þarf að vera hjá henni á spítalanum allan sólarhringinn. Einnig eiga þau 3 önnur börn sem þarf að hugsa um. Ronja systir hennar 6 ára gefur henni beinmerg.

Því höfum við Ólöf Ása Þorbergsdóttir móðursystir Ólafs og Elva Rut Antonsdóttir dóttir Ólafar Ásu ákveðið að halda tónleika til styrktar þessari fjölskyldu sem gengið hefur í gegnum meiri og erfiðari raunir en sanngjarnt er að leggja á fólk. Okkur finnst nóg að þau þurfi að hafa áhyggjur af dóttur sinni og börnum og þau þurfi ekki að hafa peningaáhyggjur ofan á það.

Þess vegna hvetjum við fólk til þess að mæta á tónleikana, hafa gaman að því og njóta góðrar tónlistar frá frægu og góðu tónlistarfólki sem gefur vinnu sína fyrir málstaðinn.

Það kostar litlar 2000 krónur inn á tónleikana.

Miðasala er hafin: http://midi.is/tonleikar/1/5636/

Einnig er hægt að kaupa miða við innganginn.

Fram koma: (engin sérstök röð)

  • Skítamórall
  • Greifarnir
  • Ingó og veðurguðirnir
  • Vítamín
  • Jeff Who
  • Edgar Smári og Arnar
  • Fjallabræður
  • Þorbergur Skagfjörð
  • Karen Ósk Þórisdóttir og Anna Hjördís Skagfjörð
  • KK
  • Hera Björk
  • Páll Óskar
  • Hafdís Huld
  • Cliff Clavin

Kynnir verður Ragnhildur Steinunn

Styrktartónleikar verða í Háskólabíó, mánudagskvöldið 14. September 2009.

Húsið opnar kl 20:00 og byrja tónleikarnir kl 21:00, í andyrinu verður trúbator að spila tónlist og veitingar seldar í sjoppunni.

 

/Smári

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið