Uppskriftir
Steikt nautalund með silkimjúku graskers purée, grænkálssalati og kryddsmjöri
Góð steik klikkar aldrei þegar það á að gera vel við sig. Hérna er steikin borin fram með graskerspurée sem inniheldur líka bakaðan hvítlauk sem gefur graskerinu enn dýpra og betra bragð. Parmesan grænkálssalatið gefur gott „kröns“ með ristuðu möndluflögunum og balsamic bökuðu sveppirnir verða ómótstæðilega klístraðir og smellpassa með kjötinu og graskerinu, en reynið að nota besta balsamic edik sem þið komist í fyrir þá, það munar!
Fyrir 2:
Nautalund, 2x 200 g (t.d. í Black Garlic marineringu)
Grasker (Butternut squash), 500 g án hýðis
Hvítlaukur, 4 rif
Rjómi, 60 ml
Smjör, 60 g
Grænkál, 60 g (stilkurinn ekki talinn með)
Parmesan, 15 g
Sítróna, 1 stk
Ristaðar möndluflögur, 20 g
Kastaníusveppir, 150 g
Herbs Provance kryddblanda, 0,5 tsk
Soyasósa, 1 tsk
Balsamedik, 1 tsk
Steinselja, 2 g
-
Takið kjötið úr kæli 1 klst áður en elda á matinn ásamt 30 g af smjöri.
-
Setjið smjörið í skál þegar það er orðið mjúkt ásamt smá salti, 0,5 pressuðu hvítlauksrifi og saxið steinseljuna saman við. Stappið vel saman og smakkið til með salti og örlítið meiri hvítlauk ef þarf.
-
Skerið sveppina í tvennt eða fernt eftir stærð. Veltið upp úr soyasósu, balsamediki, Herbs Provence, smá olíu og 1 pressuðu hvítlauksrifi. Setjið sveppina í lítið eldfast mót og bakið í miðjum ofni í 30-40 mín. Hrærið reglulega í sveppunum þar til vökvinn sem þeir leysa frá sér er gufaður upp og sveppirnir eru fulleldaðir.
-
Vefjið 3 hvítlauksrifjum þétt inn í álpappír með smá olíu og salti.
-
Skerið grasker í bita og veltið upp úr smá olíu og salti. Dreifið graskerinu yfir ofnplötu með bökunarpappír og komið innpakkaða hvítlauknum líka fyrir á plötunni. Bakið í neðstu grind í ofni í um 30 mín eða þar til graskerið er farið að taka lit og er mjúkt í gegn. Hrærið í þegar tíminn er hálfnaður.
-
Færið bakaða graskerið og hvítlaukinn í pott ásamt 30 g af smjöri og rjómanum. Maukið með töfrasprota þar til graskerið er orðið silkimjúkt. Smakkið til með salti og geymið undir loki þar til maturinn er borinn fram.
-
Saxið grænkál nokkuð smátt og setjið í skál með ristuðum möndluflögum. Rífið sítrónubörk saman við með fínu rifjárni (varist að taka hvíta undirlagið með því það er beiskt á bragðið) ásamt parmesanosti. Hrærið 0,5 msk af ólífuolíu saman við ásamt kreistu af sítrónusafa og blandið öllu vel saman. Smakkið til með salti ef þarf.
-
Hitið stálpönnu við háan hita. Bætið olíu út á pönnuna og steikið kjötið í 3,5-4,5 mín á hvorri hlið (fer eftir þykkt). Bætið smjörklípu út á pönnuna þegar þegar um 1 mín er eftir af steikingartímanum og dreypið bráðnu smjörinu yfir kjötið með skeið. Látið kjötið hvíla í 5 mín áður en skorið er í það.
Myndir og höfundur: Snorri Guðmundsson | Matur & Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Frétt4 dagar síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Frétt10 klukkustundir síðanAlvarlegar ásakanir á hendur René Redzepi og Noma
-
Markaðurinn7 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð
-
Keppni3 dagar síðanDublin Meets Reykjavík: Tíu barþjónar mætast í úrslitum í kvöld – Sjáðu myndirnar frá undankeppninni
-
Keppni22 klukkustundir síðanÞessir barþjónar komust áfram í Whitley Neill kokteilakeppninni sem fram mun fara hjá Innnes
-
Markaðurinn2 dagar síðanMorgunverður í aðalhlutverki þegar Innnes býður í opið hús 19. mars







