Freisting
Sjötíu tonn af hreindýrakjöti til

Ætla má að rúmlega sjötíu tonn af hreindýrakjöti séu til í landinu eftir nýafstaðið veiðitímabil. Veiðimenn nýta flestir kjötið til einkanota.
Á vefsíðu Ríkisútvarpsins er sagt meðal annars að meðalnýting á hverju dýri er um 60%. Kjöt af hverjum hreindýrstarfi vegur að meðaltali um 80 kíló, á veiðitímabilinu í ár voru felldir 559 tarfar og því má ætla að kjötið vegi tæp 45 tonn. Hreinkýrnar eru umtalsvert léttari en tarfarnir og kjötið sem fellur til af hverri kú að meðaltali 35 kíló. 570 kýr voru felldar, sem gera tæp 20 tonn af kjöti. Áætlað eru að 60 til 70 % kálfa séu felldir með mæðrum sínum eins og mælst er til og vegur kálfakjötið í heild tæp 6 tonn.
Samkvæmt upplýsingum frá Veiðistjórnunarsviði nýta flestir veiðimenn kjötið til einkanota, sé það ætlað til sölu verður lögum samkvæmt að skoða kjötið og votta það. Hjörtur Magnason héraðsdýralæknir á Egilsstöðum annast kjötskoðun á svæðinu. Hann segir flesta skrokka gæðastimplaða. Algengasti galli sé á kviðskotnum dýrum, en þau eru niðurstimpluð með svo kölluðum gorstimpli og ekki talin vænleg söluvara. Sjaldgæft er að beita þurfi sjúkrastimpli en í slíkum tilvikum er kjötið óhæft til neyslu og er umsvifalaust fargað.
Hjörtur segir að veitingamenn borgi að jafnaði um 1600 krónur á kílóið fyrir heila skrokka en allt að 3500 krónur á kílóið fyrir hrygg og læri.
Mynd: Freisting.is | [email protected]
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanMyndband: Kokkar tóku á móti gestum í sal á meðan þjónar fóru í eldhúsið
-
Uppskriftir5 dagar síðanAurore hjá Sweet Aurora deilir uppskrift með lesendum veitingageirans
-
Markaðurinn5 dagar síðanEyjó og Dóri mættu með afmælisköku – Hafið fagnar tímamótum
-
Keppni5 dagar síðanKokkur ársins 2026 og Grænmetiskokkur ársins 2026 fara fram í IKEA í mars
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanStemningsmyndir frá Kalda bar þegar tilnefningar BCA voru kynntar
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Frétt4 dagar síðanViðvörun til neytenda vegna grænmetisrétta í stórumbúðum
-
Frétt3 dagar síðanListería greind í grænmetisbollum frá Grími Kokki





