Markaðurinn
September – KNORR tilboð
Í september leggjum við áherslu á Knorr! Þessar klassísku vörur þarf varla að kynna fyrir neinum. Þær eru hluti af heimsþekktri vörumerkjaflóru Unilver Food Solutions og hjálpa matreiðslufólki að búa til góðan mat svo hann sé hollur og næringarríkur.
Þessar vörur henta því extra vel fyrir hvers kyns eldhús í skólum eða á vinnustöðum. Kynntu þér tilboðin sem samanstendur af hágæða sósum, kröftum, soðum, kryddmaukum og fleira.
Er eitthvað hér sem þú hefur ekki prófað?
Klassík rauðvínssósa
Þessi bragðmikla sósa smellpassar með hvers kyns steik en leyndarmálið liggur í Professional Demi Glace frá Knorr.
2 rauðlaukar
1 msk matarolía
2 msk hrásykur
7 dl rauðvín
2 hvítlauksrif
1 grein timjan
1L Professional Demi Glace frá Knorr
30 g ferskir sveppir
2 tómatar
Salt og pipar
Maizena maíssterkja
Aðferð:
1. Skerið laukinn í sneiðar og steikið hann upp úr olíu á meðalháum hita
2. Bætið sykri við og leyfið lauknum að karamellast
3. Hellið rauðvíni saman við ásamt krömdum hvítlauk og timjan. Látið malla í nokkrar min.
4. Bætið Demi Glace frá Knorr við og sjóðið niður um ca. helming
5. Skerið sveppina og tómatana niður í grófa bita og bætið við
6. Leyfið sósunni að sjóða í ca. 10 mínútur
7. Jafnið sósuna út með Maizena. Hægt er að sigta sósuna í gegnum fínt sigti
8. Krydda með salt og pipar eftir þörf
-
Markaðurinn7 dagar síðanEvogro ræktunarskápur hámarkar ferskleikann – nýjung hjá BVT
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni2 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Markaðurinn6 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn2 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir
-
Frétt4 dagar síðanMilljörðum varið í að bjarga krám og lífga upp á verslunargötur




