Freisting
Seldist upp í áramótapartý í Turninum

Uppselt var í áramótapartý sem fyrirhugað var að halda á 20. hæð í VeisluTurninum svokallaða, sem er nú verið að leggja lokahönd á við Smáratorg. Þetta hefur dv.is eftir Borgþóri Friðriki Ágústssyni, einum eigenda VeisluTurnsins. Af óviðráðanlegum orsökum verður aftur á móti ekki haldið upp á áramótateitið vegna þess að gluggakerfi fyrir hæðina kemur ekki til landsins fyrr en í desember.
Því mun VeisluTurninn á 20. hæð ekki opna fyrr en í lok janúar að sögn Borgþórs. Staðurinn er fyrirhugaður fyrir almenna veisluþjónustu og getur tekið við hópum frá 15 og upp í 300 manns. Á 19. hæðinni er svo hádegisverðarveitingastaðurinn Nítjánda.
Borgþór segir þetta aftur á móti sýna fram á mikla eftirspurn eftir starfseminni. Forsvarsmenn VeisluTurnsins hafi fengið fjölda fyrirspurna frá hópum, einstaklingum og fyrirtækjum um þjónustuna sem þar sé boðið upp á. Aðspurður hvers vegna VeisluTurninn dragi svo mikið að, segir Borgþór útsýnið vissulega skipa sinn sess en auk þess sé gríðarlegur metnaður lagður í allt sem honum tengist. Þar sé allt sérhannað og sérsmíðað, allt frá hnífapörum til stóla. Svo kemur landslið veitingamanna þarna að og má segja að þar sé valin maður í hverju rúmi, segir Borgþór.
Aðspurður hvort forsvarsmenn VeisluTurnsins hyggist taka við af Perlunni sem sá veitingastaður sem veki hvað mesta eftirtekt, segir Borgþór VeisluTurninn einfaldlega vera viðbót við flóruna og að þar sé verið að bjóða upp á nýja sýn hvað þetta varðar.
Heimasíða Turnsins: www.turninn.is
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanSnædís komst áfram í úrslit Bocuse d’Or
-
Bocuse d´Or6 dagar síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanMyndasyrpa. Snædís skilar réttunum til dómara
-
Bocuse d´Or5 dagar síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Keppni4 dagar síðanHrafnkell Ingi hlýtur titilinn besti barþjónninn – myndir frá verðlaunahátíðinni
-
Markaðurinn5 dagar síðanHeilsárshótel á Vesturlandi leitar að nýjum hótelstjóra eða rekstraraðila
-
Markaðurinn4 dagar síðanTandur fyrst á Íslandi til að Svansvotta snyrtivörur
-
Markaðurinn5 dagar síðanSnædís Xyza keppir í Bocuse d’Or Europe í dag





