Viðtöl, örfréttir & frumraun
Rífandi stemmning í saltfiskveislu á Ísafirði
Fyrsta saltfiskveisla sumarsins var haldin í Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað á laugardagskvöld. Sú hefð hefur komist á að leikmenn sjá um eldamennskuna á fyrsta kvöldinu en eftir það sjá SKG veitingar um eldamennskuna.
Að sögn Jóns Sigurpálssonar, safnvarðar í Neðstakaupstað, var þetta að öðrum saltfiskveislum ólöstuðum sú besta hingað til og lagðist þar allt á eitt, maturinn gómsætur, hljómsveitin góð og gestirnir komnir til að skemmta sér. Dansinn dunaði fram á nótt undir taktföstum slætti og ljúfum tónum Saltfisksveitar Villa Valla og þakið ætlaði að rifna af húsinu í síðasta laginu.
Greint frá á Vestfirska vefnum bb.is
Mynd: BB.is
-
Markaðurinn5 dagar síðanLaufey og Collab vinna alþjóðleg verðlaun fyrir bestu markaðsherferðina
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFullt hús og mikil stemning á afmælishátíð Café Riis
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanEin lélegasta vínuppskera í þrjá áratugi
-
Markaðurinn6 dagar síðanBeittir Hnífar sameinast nýju fyrirtæki – Glóðin veitingavörur tekur til starfa
-
Markaðurinn6 dagar síðanKomið víða við í heimsókn KAI til Íslands
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanArnór Ingi stefnir hátt með Laut – opnar fyrir kvöldverð á morgun
-
Markaðurinn2 dagar síðanBakarameistari Bakels heimsækir Ísland og heldur bakaranámskeið
-
Keppni2 dagar síðanStyttist í stóru stundina hjá Kokkalandsliði Íslands



